Húsmæður úti á lífinu - föstudaginn 13.

Erla, Árdís, Kristín (að gleypa ljós), Sólveig, Inga - heilt kvöld á ... galeiðunni.

Ljósmyndari: Berglind | Staður: Laugavegurinn | Tekin: 13.3.2009 | Bætt í albúm: 14.3.2009

Athugasemdir

1 identicon

Það sést langar leiðir hver raðaði þessum glæsilegu konum upp fyrir myndatökuna - enda er þeim raðað upp eftir stærð!!  Alveg eins og þú raðar bókum í bókaskáp ;)

Erla (IP-tala skráð) 15.3.2009 kl. 12:49

2 Smámynd: Berglind Steinsdóttir

Erla! Þú ert að segja að ég sé ferköntuð, ég fæ hroll. Og ég, svo að því sé haldið til haga, raða bókum eftir EFNI - sálfræðingur, hjúkrunarfræðingur, geislafræðingur, almannatengill, lögfræðingur.

Hahh.

Leiðréttið ef þið þorið.

Berglind Steinsdóttir, 15.3.2009 kl. 19:54

3 identicon

Vissi ekki að þú raðaðir bókum. Hef alla tíð staðið í þeirri trú að þú settir þær bara upp í hillu, eða ofan á hilluna, eða í það minnsta nálægt henni.

Hrafnhildur (IP-tala skráð) 16.3.2009 kl. 09:26

4 identicon

Nei Berlind mín - langt frá því að vera ferköntuð - bara skemmtileg ;)  Ég man bara eftir ítarlegum umræðum okkar á milli hér í denn um niðurröðun bóka í hillur - say no more!!!  XXXXX

Erla (IP-tala skráð) 16.3.2009 kl. 17:53

5 Smámynd: Berglind Steinsdóttir

Hmm, ég man bara eftir umræðum um að ég laðist að bókum í annarra manna húsum og fyllist grunsemdum þegar ekki er skorið upp úr þeim eða þær eru á haus. Ég neita að trúa að ég hafi raðað bókum eftir stærð eða hvatt aðra til þess. Ég sit hér með kökk í hálsinum.

Berglind Steinsdóttir, 16.3.2009 kl. 18:34

6 identicon

ææ Berlind mín - hvurslags eiginlega !  Umræðurnar voru örugglega ekki fyrir framan þínar eigin bókastæður - man ekki alveg hvar, en man þó að þú hafðir mjög ákveðnar skoðanir á málinu.  Já og þær máttu auðvitað alls ekki vera á haus ;)

Erla (IP-tala skráð) 17.3.2009 kl. 10:07

7 Smámynd: Berglind Steinsdóttir

Þú manst það víst - var það ekki á Lindarbrautinni? Reyndar á ég núna mjög forvitnilega bók sem ég keypti fyrir meira en mánuði og ég heyri ekkert nema gott um en kem ekki í verk að byrja á - Karlar sem hata konur.

Berglind Steinsdóttir, 17.3.2009 kl. 20:32

Bæta við athugasemd

Hver er summan af fimm og fimm?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband