Tossabekkir á 7. og 8. áratugnum

Ég er ekki sérlega meyr týpa en það var stutt í tárin og grát og gnístran tanna þegar ég las viðtöl í gær við fyrrverandi nemendur í svokölluðum tossabekkjum í grunnskólunum á síðustu öld. Ég man eftir þessari „getuskiptingu“ og hef lengi staðið í þeirri meiningu að krökkum hafi verið raðað eftir lestrargetu í upphafi skólagöngu. Ég verð svo döpur þegar ég hugsa til þessarar mismununar, hvernig kerfið hefur eyðilagt líf fólks. Ég var ekkert meðvituð um þetta í Langholtsskóla á sínum tíma en þegar við hóuðum árganginum saman fyrir nokkrum árum kom á daginn að engin bekkjarmynd var til af svokölluðum tossabekk.

Nógu er slæmt þegar misvitrir krakkar koma illa fram við bekkjarsystkini sín, eða hvern sem er auðvitað, en það er óverjandi að kerfið standi sjálft fyrir mismunun og/eða einelti.

Djöss.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta er mjög áhugavert. Í litlum skóla úti á landi var þetta ekki hægtþar sem það var bara einn bekkur í hverjum árgangi. Þá er ég t.d. að tala um eins og hjá systkynum mínum sem eru fædd 62 og 64. Spurning hvernig þetta viðhorf sem birtist í tossabekkjunum hér fyrir sunnan hefur birst í minni skólunum úti á landi. 

Veistu hvenær þetta hætti í Langholtsskóla, þessi skipting eftir getu í bekki? 

Með bestu

Hrafnhildur (IP-tala skráð) 4.2.2016 kl. 13:43

2 Smámynd: Berglind Steinsdóttir

Nei, ég veit það ekki en það var næstum örugglega löngu fyrir 1980. Ég giska á 1975.

Berglind Steinsdóttir, 5.2.2016 kl. 20:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband