Þriðjudagur, 23. maí 2017
Fyrsta maraþonið
Ég get ekki lagt þennan tengil á Facebook-vini mína þannig að ég ætla að geyma hér hina stórkostlegu minningu um klukkutímana fimm sem ég varði á hlaupum um Kaupmannahafnarborg á sunnudaginn. Auðvitað hefði ég getað lagt mig aðeins meira fram en 1) maður á að byrja verr en vel, 2) ég vildi njóta umhverfisins og 3) ég er svo gott sem harðsperrulaus. Það var heitt, sólin skein, fólk hvatti mann meðfram brautinni, meðhlaupendur peppuðu og stemningin var í alla staði algjörlega frábær.
Athugasemdir
Sjúklega flott
Hrafnhildur (IP-tala skráð) 24.5.2017 kl. 16:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.