Miðvikudagur, 31. maí 2017
Lækkað verð > ódýrari lán
Fyrir viku fussaði ég svolítið ofan í lyklaborðið yfir æsingi fólks út af Costco. Í millitíðinni hefur mér verið boðið upp á fersk jarðarber og vínber þaðan, fólk á mínum vegum hefur keypt inn til veisluhalda og sparað ógrynni, fréttir borist af lækkandi vöruverði í öðrum búðum, jafnvel búðum sem hafa kynnt sig sem lágvöruverðsbúðir -- og nú skilst mér að kostnaður við húsnæðislán lækki vegna lækkaðs verðs.
Kannski fæ ég nýjar fréttir í næstu viku en nú trúi ég smá á samkeppnina. Ég er stútfull af bjartsýni í sumarbyrjun.
Samt galli að öll ferskvaran sé í hörðu plasti.
Athugasemdir
Gæti verið gaman að fara í hópferð- rannsóknarleiðangur. Ég er hins vegar alls ekki með kort. Hugs hugs.
Hrafnhildur (IP-tala skráð) 1.6.2017 kl. 10:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.