Þriðjudagur, 26. desember 2023
Skert fæðuöryggi?
Ég skil ekki þessa meintu frétt. Ég held að formaður Bændasamtakanna sé að hugsa um smjörið sem endist heima hjá honum eða eitthvað álíka gáfulegt. Enda segir hann til viðbótar við spádóm um níu daga birgðir:
Ég held að við séum með skilgreinda lagertölu upp á níu daga eða kannski níu vikur ef við náum því.
Eins og níu sé hans heilaga tala.
Ég held sem sagt að hann sé að lobbíast og honum er það heimilt, en hvað er fréttamaðurinn að hugsa?
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 16. desember 2023
Verkfall flugumferðarstjóra
Mér kemur millilandaflugið mikið við. Ég á eftir að fljúga heim í janúar, túristar á mínum vegum eiga eftir að fljúga til Íslands í desember og fjölskyldumeðlimir að fljúga til mín í næstu viku. Ég held að flugumferðarstjórar séu vel settir og ættu að taka því sama og aðrir hafa fengið.
En útspil Samtaka atvinnulífsins fær mig næstum til að skipta um skoðun á kjörum flugumferðarstjóra. Ef tjónið er þegar farið að hlaupa á milljörðum skiptir greinilega mjög miklu máli það sem þau gera í vinnunni.
Ferðaþjónustan hefur einstakt lag á að skjóta sig í fótinn. Ég veit að Samtök atvinnulífsins eru ekki Samtök ferðaþjónustunnar en hvor tveggja samtökin þjóna atvinnulífinu. Og ferðaþjónustan kveinar undan lélegri afkomu en þegar eitthvað gerist, eins og brú brotnar og er ekki hífð upp á næsta klukkutímanum, kveinar ferðaþjónustan undan tjóni upp á milljarða.
Það er ekki hægt að kvarta undan lélegri afkomu og sturluðu tjóni vegna afkomubrests í sama orðinu, það er bara ótrúverðugt.
Og nú er Sigríður Margrét Oddsdóttir langt komin með að sannfæra mig um að flugumferðarstjórar eigi betra skilið en þeim hefur verið boðið.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 13. desember 2023
653 kr.
Enn er ég í sparðatíningnum. Ég kaupi oft smátt á göngu minni um borgina. Nú keypti ég brauð og banana fyrir 4,32 evrur og borgaði með Indóinu mínu. Mér var boðið að velja á milli heimagjaldmiðils og staðargjaldmiðils. Ég vel alltaf erlenda gjaldmiðilinn skv. ráðleggingum. Í þetta skipti tók ég eftir íslensku upphæðinni. Hún var 666 kr. en ég greiddi 653 kr. af því að ég valdi evrurnar.
Alltaf að velja evrur en ekki krónur.
Nú er ég líka orðin langeyg eftir að losna við krónuna, algjörlega óháð mögulegri inngöngu í Evrópusambandið.
Hvers konar meint sjálfstæðishugsun er það að halda í gjaldmiðil sem enginn tekur við utan landsteinanna?
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 10. desember 2023
381 króna
Ég keypti 150 gramma snakkpoka (spænskan) og fimm mandarínur á 381 kr. (2,52 evrur) í Carrefour í Málaga. Mér finnst þetta ekki vandræðalega ódýrt. Það er ódýrara en í Bónus en hér eru líka launin langtum lægri en heima.
Og ég borgaði fyrir einn mánuð 250.000 kr. í leigu fyrir litla stúdíóíbúð á besta stað í miðbænum. Hún er auðvitað fullbúin öllu (nema bakarofni, kaffiuppáhellingarvél og lesljósi við rúmið). Sjúklega ódýrt? Nei, mér finnst það ekki. Sem betur fer. Ekki má gleyma svölunum sem voru ástæðan fyrir valinu.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 6. desember 2023
Fyrrverandi kennari
Ég hætti að kenna í grunnskóla 1996 og framhaldsskóla 2001, ekki af því að ég væri komin á aldur heldur vegna þess að mér fannst vinnuumhverfið óboðlegt. Börnin komu ólesin í skólann og álagið var þannig að ég átti aldrei almennilega frí um helgar eða páska. Ég átti frí um jólin vegna þess að þá voru annaskil en um páska sat ég uppi með ritgerðir sem ég varð að lesa þá.
Ég hlustaði á Jón Pétur Ziemsen í síðdegisútvarpinu í gær og hreifst með ákafanum og ástríðunni. Ég veit ekki hvað á að gera til að snúa þróuninni við - ef ég hefði vitað hvað væri til ráða hefði ég sennilega ekki flúið fyrir rúmum 20 árum - en ég held að ráðamenn ættu að hlusta á fólkið í skólunum. Svo þurfum við öll að róa í sömu átt og ekki vera í stöðugum umkenningaleik.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 28. nóvember 2023
Heimska
Ég er að lesa bók sem heitir Heimska. Hún fær ekki sérlega góðar einkunnir, þar sem ég hef lesið, en ég er ánægð með hana. Ég les hana eins og smásögur, einn kafla á dag, og þar sem ég er í heitu og þurru landi skil ég hana eftir úti á svölum.
Þegar ég fór á fætur í morgun og leit upp á svalir (já, upp hringstigann) var bókin horfin. Ég hafði mávana grunaða eða vindinn en svo reyndist hún hafa lekið aftur fyrir stóran blómapott. En mér finnst ég svolítið heimsk að hafa gónt ofan í húsgrunninn við hliðina á byggingunni í von um að sjá Heimsku bregða þar fyrir.
Mig langar ekki að taka bókina aftur með mér heim en hef ekki rekist á bókasafn hér á Spáni sem myndi fagna henni. Mér finnst óþarfi að eiga margar bækur og allsendis óþarft að eiga aðrar bækur en þær sem höfða eindregið til manns. Og þótt mér finnist sagan af Áka og Lenítu allrar athygli verð er hún ekki eiguleg. Þau eru algjört samtímafólk sem gengst upp í athygli, gjarnan hvort frá öðru en líka frá samfélaginu. Þegar ég leitaði í ofboði að bókinni í morgun bjóst ég næstum við vökulu auga myndavélar að fylgjast með viðbrögðum mínum. En auðvitað var öllum sama, enda er okkur flestum sama um flest fólk.
Við erum föst heima í okkur sjálfum.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 19. nóvember 2023
Spánn
Ég hef núna verið tæpan mánuð á Spáni. Því miður hef ég ekki lært spænsku á þessum tíma og því miður ekki kynnst Spánverjum. Ég hef bara verið í minni íslensku búbblu og með mitt internet.
En það sem ég hef tekið eftir er:
- hvað spænskt fólk klæðist litríkum fatnaði. Bæði hef ég séð fatnaðinn á fólki en ekki síður þvott á snúrum fyrir utan glugga fólks. Þetta á við um margar byggingar líka, enda engin tilviljum að Almadóvar er spænskur.
- fjöldi leikhúsa en ég hef ekki orðið vör við bíóhús.
- að alls staðar nema í strætó virðist hægt að borga með korti. Ég var þeirrar röngu trúar að í bakaríum, á mörkuðum og jafnvel veitingastöðum væri gerð krafa um peninga. Og það virðist ekkert sérstaklega gert ráð fyrir þjórfé. Og nú er evran komin í 154 krónur, var 148 krónur þegar ég fór út. Óttalega sveiflukenndur gjaldmiðill sem við búum við.
- ótrúlegur fjöldi hunda, bæði lausir og í taumi með gangandi, hlaupandi og hjólandi eigendum sínum, og jafnframt mjög margir og mjög ræðnir kettir sem hafa komið mjálmandi til mín eða mjálmað til mín úr gluggakistum.
- brekkur. Ég var í bæ sem heitir Cala del Moral og þar var hægt að hlaupa á ströndinni en um leið og maður beygði ögn til vinstri var komin svívirðileg brekka. Það virðist eiga við um Malaga líka og sannarlega sáum við brekkur, gil, brýr og göng þegar við keyrðum til Córdoba og Granada um daginn.
- við gátum varpað íslenska sjónvarpinu á spænska skjáinn af því að Orange-myndlykill var við sjónvarpið. Við horfðum því á fréttir og Kappsmál í beinni útsendingu! Og í gær hélt áfram mynd í sjónvarpinu sem var þó kirfilega merkt að væri aðeins hægt að horfa á á Íslandi.
- að í íbúðunum sem ég hef leigt hafa verið hringstigar milli hæða, þótt íbúðirnar séu ponsulitlar.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 16. nóvember 2023
Grindavík
Ég hef engar tengingar við Grindavík þannig að ég býð ekki upp á neinar brakandi útlistanir á ástandinu. Ég hef bara undrast að sjá hversu margt áberandi fólk er frá Grindavík, ég var ekki búin að átta mig á því hve margt íþrótta- og stjórnmálafólk er af svæðinu.
Annað sem ég furða mig á er að hafa ekki séð neins staðar áberandi umræðu um millilandaflug. Ég þekki fólk í ferðaþjónustunni sem hefur fengið afbókanir, einkum vegna stórra hópa, sem er alveg skiljanlegt þegar fólk situr í útlandinu og les endalaust um rýmingu bæjar í næsta nágrenni við alþjóðaflugvöllinn.
Sjálf veit ég um fólk sem hefur flogið burt af landinu eftir að hamfarirnar hófust þannig að ég þykist vita hið sanna í málinu, en það þarf að róa mannskapinn. Eða lokast landið fljótlega eins og Sigríður Hagalín spáði í skáldsögu sinni?
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 6. nóvember 2023
Indó
Ég skal svoleiðis segja ykkur það að ég hef samanburð á Indó-korti og öðrum bankakortum í útlöndum. Það eru engar ýkjur að gengisálag upp á 2,5% hjá hinum bönkunum er ekki hjá Indó, a.m.k. ekki enn sem komið er. Ég veit ekki hvort bankinn heldur þetta út til lengdar, minnug þess að Atlantsolía ætlaði að veita hinum bensínsölunum samkeppni en ég held að henni sé ekki lengur til að dreifa.
Nú prófuðum við að kaupa ís upp á 3 evrur. Hjá Indó kostaði hann 449 krónur en 460 hjá hinum bankanum. 11 krónur gera ekki gæfumuninn en þegar til lengdar lætur fer það að skipta máli - og gírugu bankarnir finna vonandi að þeir missa viðskiptavini. Kannski bæta þeir sig þá, en þá ætla ég samt að muna eftir að halda áfram viðskiptum við bankann sem veitti alvörusamkeppni.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 24. október 2023
Kvennaverkfallið
Klukkan er að verða eitt og ég sit í sófanum heima hjá mér, baða mig í D-vítamíni sem leggur inn um gluggann og er að fara að tygja mig á samstöðufund.
Ég er forréttindapési. Ég er í skemmtilegri vinnu sem ég menntaði mig til, á vinnustað sem hvetur til samstöðu og er á leið á samstöðufund sem er hugsaður til áréttingar á því að stórir hópar kvenna þiggja lægri laun fyrir sambærilegt starf og karlar vinna. Ég þekki sjálf engan einstakling sem vill að konur fái lægri laun en karlar fyrir jafn verðmæt störf.
En þetta er ekki eins einfalt og það hljómar. Störf við að varsla peninga eru einhverra hluta vegna metin hærra en að varsla fólk. Ég nota viljandi svona ómanneskjulegt orð, varsla. Einhver raðar fólki og stéttum á launaskalann og þótt konur hafi sums staðar hafist til metorða er eins og þær karlgerist í þeim stöðum og beiti sér ekki fyrir jöfnuði.
Ég ætla að mæta á fundinn vegna þess að þessi samstaða skiptir máli þótt ég hafi það persónulega mjög gott.
Svo eru ólaunuðu aukastörfin. Hver skipuleggur sumarfrí fjölskyldunnar? Jólagjafakaup? Skreytingar? Hver tekur til nestið? Þið þurfið ekki að horfa langt til að sjá að í obba tilvika sér konan um þessa aukavakt, ásamt því að líta til með fullorðnum foreldrum. Ég held að flest fólk, sem sagt konurnar líka, sé til í þessi aukastörf en vilji deila með hinum á heimilinu.
Áfram, jafnrétti!
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 16. október 2023
Fækkum kóngum og drottningum
Vá, hvað mér líst vel á þessa tillögu um að sameina Seltjarnarnes, Reykjavík og Mosfellsbæ. Mér hefur löngum fundist smákónga (og -drottninga)blætið kjánalegt. Hvað gerir Mosfellsbæ frábrugðinn Breiðholtinu? Hann er aðeins fjær miðbæ Reykjavíkur. En Kjalarnes er enn fjær og það tilheyrir Reykjavík.
Sameining myndi auðvelda almenningssamgöngur, sorphirðu og alls kyns þjónustu. Og, já, auðvitað ætti svo að stíga næsta skref og sameina til suðurs líka og fá Kópavog, Garðbæ og Hafnarfjörð í sömu sæng.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 10. október 2023
Eru sykursýkislyf grennandi?
Ég var að heyra að fólk sem er ekki með sykursýki taki sykursýkislyf sem megrunarlyf. Ég er nú svo gömul sem á grönum má sjá en ég hafði ekki heyrt þetta fyrr en í gærkvöldi. Getur það verið satt? Það fylgdi sögunni að fólk með aukakíló sækti svo í þessi lyf að raunverulegir sjúklingar fái ekki lyfið.
Getur þú staðfest þetta?
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 2. október 2023
Minnistap
Mögnuð leikin mynd um Alzheimer var í sjónvarpinu um helgina. Fimmtugur háskólakennari finnur að hún byrjar að gleyma og áður en hún segir nokkrum í fjölskyldunni frá pantar hún tíma hjá taugalækni og fær skoðun á heilanum. Þegar hún segir manninum sínum frá og svo uppkomnum börnunum er hún þegar farin að sjá framtíðina skýrt og sendir framtíðarsjálfi sínu skilaboð um að þegar hún muni ekki lengur nöfnin á börnunum sínum skuli hún sækja töflur á vissan stað í kommóðunni og gleypa þær allar með vænum skammti af vatni.
Læknirinn segir að sjúkdómurinn sé langt genginn vegna þess að hún hafi notað heilann svo ótæpilega, þannig hafi einkennin ekki komið fyrr í ljós en fyrir vikið sé minna hægt að meðhöndla.
Myndin var svo átakanleg og vel gerð að ég hágrét yfir henni sums staðar. Ég get bara ímyndað mér einhvern mér nákominn sem hættir einfaldlega að muna það sem var sagt rétt í þessu. Það reynir á þolinmæðina en samt vita allir að við þessu er ekkert að gera. Minnisglapamanneskjan er sannarlega ekki að leika sér að þessu.
Og ég get líka sett mig í spor manneskjunnar sem veit að hún tapar öllum minningum og mestallri færni og verður í raun kannski byrði á sínum allra nánustu.
Mögnuð mynd. Grátlegur veruleiki sem ég vona að sem fæstir upplifi en óttast að of margir upplifi.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 25. september 2023
Kostnaður við réttarfar
Í fréttayfirlitinu heyrðist rétt í þessu setningin: Dómstjóri segir kostnaðinn hlaupa á milljónum.
Þá er bara verið að tala um þinghaldið sjálft, það að koma upp dómsal í Gullhömrum. Þetta er fórnarkostnaðurinn við að vera með réttarríki þar sem sakborningar eru leiddir fyrir dómara, 25 í þessu tiltekna máli sem er auðvitað fáheyrður fjöldi.
Nú þætti mér gaman að vita hvort háværu raddirnar sem gagnrýndu hvalveiðimótmælendurna vegna kostnaðar við lögreglu sem fór þrisvar upp í mastrið til þeirra eru líka þeirrar skoðunar að fella eigi kostnaðinn við málið á sakborningana 25.
Launþegar borga skatta og þeim er varið í alls konar, þ.m.t. löggæslu og réttarfar. Við viljum sjálfsagt öll að peningunum sé vel varið en sumt kostar einfaldlega ef við viljum vera siðað ríki.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 24. september 2023
Tónlist í eyrum mínum
Megi sem flest lítil sveitarfélög sameinast! Það á ekki aðeins við um Stór-Keflavíkursvæðið heldur ekki síður Reykjavík og grennd. Ef ég ætti tvær óskir færi önnur í að sameina öll litlu ríkin í ríkinu undir einn góðan hatt. Samlegðaráhrifin yrðu ótvíræð. Minna fé og minni tími færi til spillis. Ákvarðanir yrðu skilvirkari. Allir græða nema nokkrir kóngar og drottningar (bæjarstjórar).
En auðvitað þyrfti að veita viðkomandi aðhald eins og alltaf þarf að veita valdhöfum.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 17. september 2023
Bakgarðshlaupararnir
Ég er hlynnt RÚV og bæði hlusta og horfi á línulega dagskrá, en almáttugur hvað Vísir stendur sig MIKLU betur í upplýsingagjöf þegar um er að ræða atburði sem ég hef áhuga á að fylgjast með. Ég er búin að fylgjast með bakgarðshlaupurunum með öðru auganu síðan í gær. Vísir er með beina útsendingu í mynd og stöðugar textalýsingar sem auðvelda áhugasömum að glöggva sig á stöðunni. Svo er náttúrlega tímataka með tölulegar upplýsingar.
Það er íþrótt að hlaupa þótt enginn bolti sé fyrir framan fæturna en á íþróttasíðu RÚV er ekki að finna stakt orð um þennan viðburð og verður væntanlega ekki fyrr en einn hlaupari stendur uppi sem sigurvegari. Og nú eru bara tvær konur eftir í keppninni (og enginn karl). Ótrúlegt spennustig í gangi.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 15. september 2023
630 krónur!
Þau sem brjóta af sér og nást fara sum í fangelsi sem líka eru kölluð betrunarhús. Ég fór í skoðunarferð á Hólmsheiði í vor og varð döpur. Sennilega er það fangelsi bara fínt en frelsissvipting er dapurlegt úrræði sem ég skil þó vel að stundum þurfi að beita.
Ég spurði hvernig færi með fjárhagsskuldbindingar fanga sem eru þar um tíma. Mér skildist að fangar gætu samið um frystingu skulda, t.d. vegna húsnæðis, en hvað gerist síðan þegar fangar koma aftur út í samfélagið og hafa ekki aflað tekna í langan tíma en skuldir hafa ekki horfið?
Best að ég segi það skýrt að auðvitað hafa gjörðir afleiðingar og sá sem brýtur af sér getur þurft að sæta refsingu sem stundum er frelsissvipting.
Á RÚV er líka kominn í sýningu danskur þáttur sem gerist í fangelsi. Ég horfði áhugasöm á fyrsta þáttinn á sunnudaginn og fékk ómældan hroll. Fangarnir voru sterkara gengi en fangaverðirnir og meðal fanganna var stéttskipting. Þegar ofbeldisfullt fólk er vistað saman trúi ég að það kalli á alls konar vonda hegðun. Ég gæti ekki unnið á svona stað þar sem maður þarf að vera taktískur til að þrífast. Sumir fangaverðirnir voru sjálfir ofbeldishneigðir og aðrir svo ferkantaðir að jaðraði við einfeldni. Ég er voða hrædd um að ég vildi allan daginn fara eftir reglum sem eru kannski alls ekkert alltaf svo gáfulegar - en reglur hússins.
Já, og hvatinn að þessari skriflegu hugsun minni í dag er fréttin af dagpeningum fanga. Vonandi er það mýta að allir fangar reyki (sígarettur) en 630 krónur sem mögulega dugðu fyrir sígaréttupakka árið 2006 duga ekki lengur.
Fangar hljóta að eiga að njóta lágmarksmannréttinda þótt þeir brjóti af sér. Ég veit fyrir víst að í þeim hópi eru ýmsir sem voru sjálfir fórnarlömb í æsku. Þolendur verða sumir gerendur.
Hins vegar finnst mér að hvítflibbaglæpamenn sem svíkja í stórum stíl undan skatti og eiga - þegar upp kemst - að borga tvöfalda upphæðina sem þeir stungu undan eða sitja inni í kannski eitt ár að borga fyrir dvölina.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 13. september 2023
Annað fyrirtækið játar samráð, hitt ekki
Ég heyrði rök lögmanns Samskipa á Sprengisandi á sunnudaginn en gef bara ekkert fyrir þau. Lögmaðurinn var mjög sannfærandi og ég trúi ekki einu aukateknu orði.
En tölum um upphæðir. Miðað við umræðuna hafa aðalflutningafyrirtækin tvö haft stórkostlega mikið fé af fyrirtækjum sem hafa orðið að velta kostnaðinum út í verðlag sem hefur bitnað á neytendum. Ég held að allir séu sammála um að þannig virki fákeppni.
Lögmaðurinn talaði eins og hann hefði lesið allar 3.200 síðurnar sem Samkeppniseftirlitið tók saman um samráð fyrirtækjanna. Það hefur tekið hann dágóðan tíma og eitthvað kostar hann. Svo leggur hann nafn sitt við málflutninginn og eitthvað kostar það. Samskipum finnst þess virði að taka hraustlega til varna. Hvað ætli Samskip séu að verja mikla hagsmuni með því að tefla fram sínum besta lögmanni?
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 10. september 2023
Starfsferill eða árangur?
Já, manni finnst eins og þetta tvennt fylgist að, þá af því að maður er alinn upp við að manni farnist vel ef manni gengur vel í vinnu. Er það ekki rétt hjá mér?
Ég horfði á áhugaverða bíómynd um togstreitu milli þess að taka ákvarðanir í almannaþágu og fórna ferlinum og þess að hlúa áfram að egóinu sem endurspeglast í farsælu starfi.
Ég vil ekki segja meira um það ef einhver skyldi vilja fara inn á RÚV og sækja myndina þar.
Mér er samt óhætt að segja að myndin er um byssulöggjöf og rökin með því að leyfa hinum almenna borgara í Bandaríkjunum að kaupa og eiga byssu til að verja sig og fjölskyldu sína, eins og þar stendur, og rökin gegn því að leyfa hinum almenna borgara í Bandaríkjunum að kaupa og eiga byssu vegna þess að hinn almenni borgari getur verið brjálæðingur og fjöldamorðingi.
Ég ímynda mér að flest sem ég þekki vilji hafa strangt eftirlit með byssueign fólks en þið getið bölvað ykkur upp á að vandræðalega margir almennir Bandaríkjamenn og spilltir pólitíkusar vilja leyfa óhefta byssueign með veikum rökum til þess að byssuframleiðendur geti skarað eld að eigin köku.
Þegar til stykkisins kemur hugsa nefnilega óhóflega margir um eigið hægindi umfram stóru hagsmunina - og það þótt þeir gætu ekki með nokkru móti komið öllum sínum auði í lóg.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 6. september 2023
Að mótmæla eða ekki að mótmæla
Það er alveg hugsanlegt að konurnar tvær sem klifruðu upp í möstrin á hvalveiðibátunum í fyrradag séu atvinnumótmælendur, svona eins og ýmsir atvinnulobbíistar hjá samtökum. Ég veit ekkert hvort þær brenna fyrir því sem þær gera, frekar en lobbíistar sem beita sér fyrir málstað sem ég veit ekki hvort þeir trúa á.
Með aðgerð sinni sem aðgerðasinnar vöktu þær meiri athygli en lengi hefur verið á hvalveiðum Íslendinga. Sumum finnst allt í lagi að vera lengi að drepa dýr, sumum finnst það ekki. Ég held að okkur þætti öllum óeðlilegt að sarga kind með lélegu verkfæri en ég veit ekkert um vitsmuni eða sársaukastuðul þeirra sem ekki geta tjáð sig.
En erindi mitt í dag er að taka undir með Stefáni Pálssyni, það var fáránlegt að fórnarlambavæða Anahitu og Elissu. Og ég skil ekki enn af hverju bakpoki annarrar með vistum og hlýjum fötum var tekinn af henni fljótlega eftir að þær hófu mótmælastöðuna. Lögreglan segir að það hafi verið til að flýta mótmælalokum og bera mótmælastöðu í atvinnutæki við það að hreiðra um sig í stofu einstaklings með svefnpoka og næringu.
Lögregluþjónninn sem á endanum fór upp með búnað til að hjálpa þeim niður virkaði geðugur og er það sjálfsagt en þessi gjörningur lögreglunnar er henni til skammar.
Borgaraleg óhlýðni og þrákelkni Rosu Parks leiddi til stórkostlegra framfara. Réttur fólks til mótmæla á Íslandi ætti að vera hafinn yfir vafa.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)