Föstudagsfrídagar

Kannski er ég óvenjulegur launþegi. Ég þekki það að vera í fastri vinnu með reglulegum kaffitímum, mismunandi álagi og mánaðarlegum greiðslum. Ég þekki það að vera í óreglulegri vinnu með skóla og ég þekki það að taka tarnir, t.d. yfir sumarið.

Ég hef aldrei verið atvinnurekandi en hef hins vegar unnið náið með eiganda í litlu fyrirtæki.

Kannski er ég með fátæklega stéttarvitund en mér finnst fráleitt, segi og skrifa, að færa til árvissa frídaga sem eru bundnir dagatalinu til að fjölga þeim dögum sem launþegi er í burtu á launum. Hvernig er hægt að halda upp á 1. maí þann 7. maí af því að það er mánudagur eða föstudagur? Stundum eru jól lengri og stundum styttri. Stundum er meira gaman og stundum minna gaman. Mér finnst það eðlilegt.

Alveg eins og mér finnst eðlilegt að launþegi sé heima þegar hann er veikur eða barnið er veikt. Og sinni vinnunni í vinnunni á vinnutíma.

Ef lífið væri allt úr rjóma yrðum við leið á honum. Vinnuveitandi á líka rétt og fulltrúar atvinnurekenda og launþega eiga að geta náð saman um kjarasamninga sem eru ásættanlegir fyrir báða aðila. Inni í því eru frídagar.

Sem launþegi reyni ég að setja mig í spor yfirmanns míns. En kannski er ekkert að marka mig því að ég hef einfaldlega ekki undan neinu að kvarta.

Nema SAF ...


Bloggfærslur 15. nóvember 2012

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband