Áramótaskaup 2022

Ég var mjög ánægð, alveg himinlifandi. Ég fór yfir hvern ramma í dag til að rifja upp hvað mér þætti best vegna þess að í erli kvöldsins rekur hvert atriðið annað og ég þurfti að hafa mig alla við að hlæja að nýjum og nýjum brandara. Ég held að ég hafi mögulega í fyrsta skipti í langan tíma áttað mig á öllu þótt ég hafi verið dálítið lengi að kveikja á Halla rampi, ekki af því að mér sé ekki minnisstæð umræðan um ófatlaða leikarann sem lék fatlaðan mann á sviði heldur vegna þess að Halli er þekktur fyrir allt annað en að trana sér fram.

En hér er myndasagan mín. Mér finnst tilraunarinnar virði að láta þjóðina segja sína skoðun á lokalaginu fyrirfram en ég heillaðist ekki af því. Það var of sundurleitt eins og gerist þegar allt fólk á að fá að setja sinn svip á lagið. Og svo er meðvirkni ekki gjöfult og drífandi afl.

---

Frábær opnun með góðum og markvissum söng - og með þátttöku barna:

opnunatriði

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Pétur Jóhann og Ilmur eru frábærir leikarar og ekki spillti kötturinn:

Akureyri

 

 

 

 

 

 

 

Kosningar í Reykjavík - þessi skets fannst mér mjög nálægt toppnum:

Love ráðhús

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Ég hefði ekki veðjað á það nokkurn tímann að Jörundur Ragnarsson yrði svona fullkominn Einar Þorsteinsson. Hnökralaust atriði:

Einar með breytingar

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Eins og við vitum er ekki hlaupið að því að koma undir sig fótunum og yfir sig þaki. Bónus er að ég þekki ekki leikarana á þessu skjáskoti:

húsnæðismarkaðurinn

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Brennið þið vitar:

Hún gleymdi poka!

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Ég hef þetta brot með en mér þótti það atriði síðra en mörg önnur og endurtekin of oft. Svo er hægt að svíða málfræðihjartað um of:

beinbrot

 

 

 

Þessi börn! laughing Sum þeirra léku í jóladagatalinu í desember. Þvílík framtíðarsýn, þvílíkur texti. Þvílíkt spark í Samherja. Og svo er mér sagt að Samherji hafi fjármagnað þáttinn. Ég finn það hvergi skrifað:

lýðræði

 

 

 

 

 

 

 

 

 

„Það á að vera vont að hjóla í Samherja.“

Samherji

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hann hefur engin MANNréttindi vegna þess að hann er köttur:

Köttur með réttarstöðu sakbornings.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þetta atriði var náttúrlega eins og maður sér í kommentakerfunum þangað til eiginkonan heyrði að Hilmir Snær væri á lausu:

Hilmir Snær

 

 

 

 

 

 

 

Atriðið með hestinn var mjög gott og táknrænt fyrir nágrannaerjur sem fara út yfir öll mörk. Pétur Jóhann var algjörlega frábær en mér fannst meðleikarinn skemma senuna.

Pétur Jóhann

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Enn og aftur er leikari valinn sem hentar hlutverkinu:

Íslandsbankasalan

 

 

 

 

 

 

 

 

Með effi eða vaffi! Þetta minnti mig á þegar ég sá einu sinni á netinu talað um kúgfulla matskeið af einhverju. Einn hljóðstafur getur vissu í efa breytt:

Mávur/máfur/mágur

 

 

 

 

 

 

 

 

Nei, sko, mávurinn mætti á afsökunarnámskeið og hafði séð að sér:

Mávurinn

 

 

 

 

 

 

 

Mér finnst allt í lagi að þekkja leikarana líka stundum. Siggi fer alltaf á kostum:

Foreldraþjálfari

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þessi brandari bætti að vísu engri breidd í fáránleika umræðunnar en samt vel gerður skets:

Halli rampur

 

 

 

 

 

 

 

Já, löggan fékk verðskuldað djók á sinn kostnað:

Löggan

 

 

 

 

 

 

Hver bera ábyrgð á stýrivaxtahækkununum og þar með hækkandi vöruverði og hækkandi afborgunum? Tásað á Tene:

Pulsan

 

 

 

 

 

 

 

 

Við viljum ekki setjast á pissið:

TikTok

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Og undir lokin fengu áhugamenn um pólitík eina hárbeitta ádeilu. En hvað heitir þessi fína leikkona?

VG að losa sig við hugsjónir

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Af hverju er mér sagt að Samherji hafi borgað þáttinn?

Stuðningur


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband