,,Við erum sammála um (eitthvað) og þess vegna ..."

Mér þykja sérkennileg þau rök að fólk sé sammála og þess vegna sé eitthvað í lagi og boðlegt. Ég nefni engin nöfn en ég er búin að heyra þetta tvisvar í fjölmiðlum síðan ég fór síðast á fætur.

Hundrað menn geta verið sammála um að rautt sé blátt eða að gult sé fallegt en það eru áfram engin rök.

Þetta er það sem ég vildi sagt hafa í þessu sunnudagshádegi. 

 


Bloggfærslur 30. mars 2014

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband