Laugardagur, 10. desember 2016
Kjósa aftur?
Er einhver vissa fyrir því að upp úr kjörkössunum komi þá betra púsl?
Ég átta mig á að á lokuðum fundum ræða menn margt sem ég frétti aldrei sem lesandi í Hlíðunum en er í alvörunni trúlegt að menn geti með engu móti komið sér saman um megináherslur við stjórn landsins? Og samkvæmt þrískiptingu ríkisvaldsins semur löggjafinn lögin og framkvæmdarvaldið, ríkisstjórnin, á að framfylgja þeim. Ríkisstjórnin er aðeins ein þriggja stoða.
Nú liggur fjárlagafrumvarpið fyrir og fjárlaganefnd byrjuð að funda um það. Einhverju verður breytt, svo verður frumvarpið samþykkt og gert að lögum sem á að framfylgja.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)