Áramótaskaup 2014 - ,,beint á biðlista"

Ég get ekki tjáð mig um áramótaskaupið fyrr en rykið hefur aðeins sest. Fyrstu viðbrögð voru vissulega skýr, skaupið var leiðinlegt. Ég flissaði nokkrum sinnum af einbeittum gleðskapsvilja, t.d. að áburðarverksmiðjunni, en mér fannst vanta húmorinn í skaupið. Það var eins og fréttaskýring, auðvitað uppfull af skoðunum, en ekkert skilið eftir fyrir ímyndunaraflið. Það var ekki einu sinni sérlega vel leikið, Helga Braga var eins og hún er alltaf, Edda og Laddi endurléku gamla góða full-undir-stýri-brandarann eins og þau væru á fyrstu æfingu - og, jú, nú þegar ég er búin að skrifa mig heita get ég sagt að Þorsteinn Bachmann ER góður leikari. Vatnsfötuáskorunin sem hann tók sem læknir (og var spiluð í Kastljósinu í fyrrakvöld) var samt svo ófyndin. Matarskatturinn - barnið neytt til að borða sælgæti af því að það er ódýrara en ananasinn sem fjármálaráðherra gat leyft sér. Fyndið? Samfélagsmiðlarnir - fjórar manneskjur sitja saman í herbergi og talast við í gegnum Facebook og sms. Fyndið? Endurgerð viðtals Gísla Marteins við forsætisráðherra. Fyndið?

Það er svo sem aldrei hægt að rökstyðja til fulls hvað manni finnst fyndið og af hverju en getur ekki verið að allt hafi verið sagt og ekkert skilið eftir til túlkunar? Í mínum augum er „beint á biðlista“ smellur skaupsins. Ég er hvergi geirnegld í pólitík þannig að það hefur engin áhrif á skoðun mína á fyndni.

Vandi höfunda skaupsins á hverju ári núna er auðvitað endalaus samkeppni við krufningu mála frá degi til dags, fjölmiðlun allra sem hafa stofnað Facebook-síðu og kannski alvarleiki samfélagsins um þessar mundir. Ég hélt að skaupið yrði óvenjufyndið að þessu sinni af því að af svo mörgu væri að taka. Samt veit ég af reynslu að við vitum ekki líftíma skaupsins fyrr en að lengri tíma liðnum. Munum við á næstu árum rifja upp tök Kötlu Margrétar á spurningahríð Hönnu Birnu? Skiptir máli að konur voru alls ráðandi í upphafsatriðinu? 

Hvað vantaði? Bílavandræði framkvæmdastjóra Strætós? Hið blauta sumar? Maura og myglu á Landspítalanum? Hvað það tók langan tíma að ráða nýjan þjóðleikhússtjóra? Eigendaskipti á DV? Kosningasigur xD í Vestmannaeyjum? Útópíu (spjallþátt) Víkings Heiðars?

Nei, Kenneth Máni í Kryddsíldinni hélt uppi fjölmiðlastuðinu þessi áramótin. Kalt mat.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já það vantaði djókið, brandarann, punch lænið, var meira svona eins og uppkast af handriti !

Stjáni (IP-tala skráð) 1.1.2015 kl. 15:35

2 Smámynd: Berglind Steinsdóttir

Við sammála? Saga til næsta bæjar. Mosfellsbæjar, hehe.

Berglind Steinsdóttir, 1.1.2015 kl. 15:49

3 identicon

Ég hló allan tímann fyrir allan peninginn svo ekki voru allir á því að þetta væri leiðinlegt skaup ónei góða það er gott að við höfum ekki öll sama húmorinn þa væri skaupið alltaf hundleiðinlegt. Hana nú love you 

Ella sprella (IP-tala skráð) 1.1.2015 kl. 22:06

4 Smámynd: Berglind Steinsdóttir

Mér hefur alltaf þótt það skemmtilegt þangað til núna, alltaf að minnsta kosti fleiri ljósir punktar en dökkir. Og skaupið í fyrra fannst mér mjög skemmtilegt. https://www.youtube.com/watch?v=xk1wlCqphqE

Berglind Steinsdóttir, 2.1.2015 kl. 09:01

5 identicon

Skaupið ekkert spes í ár. Of litað. Púnktur.

Gunnar Már Ásgeirsson (IP-tala skráð) 3.1.2015 kl. 00:02

6 Smámynd: Berglind Steinsdóttir

Ég á eftir að horfa aftur til að vera viss. Vinur minn í pólitík var ekkert óhress með pólitíkina (of litað vísar til þess, ekki satt, Gunni?) en er sammála mér um að það væri ekki nógu fyndið. Of mikill sannleikur, of mikil fréttaskýring. 

Berglind Steinsdóttir, 3.1.2015 kl. 08:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband