Stolin ritgerð

Í mínu fyrra lífi kenndi ég ritgerðasmíð, textameðferð, heimildanotkun og tilvísanir, að vísu ekki í háskóla. Þegar ég hætti framhaldsskólakennslu var internetið rétt að byrja að ryðja sér til rúms þannig að bíræfnustu nemendur mínir afrituðu texta úr bókum, jafnvel fræðibókum sem við notuðum í tímum, án þess að geta heimildar. Það heitir ritstuldur og ég brást ókvæða við þegar ég stóð nemendur að honum. Ég veit auðvitað bara um dæmin sem ég uppgötvaði en þegar maður þekkir nemendur sína veit maður nokk til hvers þeir eru líklegir, maður þekkir orðanotkun og áferð texta úr prófum.

Því er síður til að dreifa þegar háskólakennarar taka að sér að leiðbeina útskriftarnemendum. Engu að síður verð ég að lýsa undrun minni ef rétt er farið með upplýsingar um nemandann sem skáldaði viðtöl við fólk í ferðaþjónustu. Ritgerðin hefur verið fjarlægð úr Skemmunni enda eitthvert ferli farið í gang, vonum seinna ef eitthvað er að marka fréttaflutning.

Ef ég hefði verið beðin að prófarkalesa ritgerðina hefði ég hnotið um misræmið í orðalagi rannsóknarspurningarinnar fremst og aftast. Ég sver það. Hvernig viðskiptafræðingur verður maður sem vandar sig ekki við neitt í lokaritgerðinni sinni? Hvað má segja um deild í HÍ sem lætur svona líðast? Hversu mikil brögð eru að svona nokkru? Hversu mörg dæmi uppgötvast ekki?

Ég er dálítið bit þótt ég geti tekið undir þau orð rektors að ekki megi dæma heila stofnun þótt einn nemandi af 14.000 gerist brotlegur. Þetta er samt spurning um verklag ...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Grrr... ég pirra mig einmitt á þessu sama: af hverju lét hann engan prófarkalesa ritgerðina og ef einhver gerði það ... er sá hinn sami ekki starfi sínu vaxinn.

Svo spurði ég mig einmitt að því hvernig standardinn er orðinn ef ritgerð, sem er uppfull af málfars- og stafsetningarvillum, fær einkunnina 8. Hvað er það eiginlega?! 

Eins og þú veist byrjaði ég að lesa meistararitgerð sem ég á endanum sendi frá mér að mestu ólesna því mér fannst ritgerðin ekki tilbúin. Viðkomandi fékk þá annan til að lesa ritgerðina og sá ætlaði (skv. nemandanum) að klára verkið svo hann gæti útskrifast á réttum tíma.

Ég veit ekki enn hvort viðkomandi útskrifaðist á réttum tíma en ef nemandinn hefur útskrifast með þessar ritgerð leyfi ég mér að efast um standardinn (afsakið slettuna) í háskólum landsins.

Ásgerður (IP-tala skráð) 8.6.2015 kl. 23:15

2 Smámynd: Berglind Steinsdóttir

Já, þú tókst eiginlega að þér hlutverk leiðbeinandans – en það dugði ekki til! Andsk.

Berglind Steinsdóttir, 9.6.2015 kl. 17:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband