Landmannalaugar

Ég sá í fréttum í gærkvöldi umræðu um að ferðamönnum í Landmannalaugum finnist of margir ferðamenn í Landmannalaugum.

Það minnir mig svolítið á alla bílstjórana sem sitja einir í bílunum sínum og þumlungast eftir Miklubrautinni á leið í austurhverfi borgarinnar í lok vinnudags. Þeim finnst of margir bílar og of fáar akreinar.

Þarf þá ekki að stýra umferð ferðamanna í Landmannalaugar? Geta Landmannalaugar ekki bara selst upp?

Mér fannst fréttamaðurinn ekki standa sig í að spyrja viðmælanda sinn, Önnu Dóru Sæþórsdóttur, prófessor í ferðamálafræði, spurninga. Við höfum vitað í a.m.k. 20 ár að Landmannalaugar eru eftirsótt náttúruparadís. Hvað á að GERA með þessa þekkingu? Er kannski einhver annar bærari til að svara þeirri spurningu en rannsakandinn?

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Berglind Steinsdóttir

Á Facebook-þræði Hauks Arnþórssonar er áhugaverð umræða um mögulegar lausnir:

Eitthvað verður að gera í Landmannalaugum.... - Haukur Arnþórsson | Facebook

Berglind Steinsdóttir, 3.8.2023 kl. 20:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband