Fljúgum burt

Ég veit að Reykjavíkurflugvöllur er ekki og verður ekki mál málanna í kosningabaráttunni í vor en ég er orðin svo óskaplega þreytt á staglinu um öryggissjónarmið. „Ef þú vilt að flugvöllurinn fari ertu um leið að segja að þér sé sama um líf sjúklinga og slasaðra.“

Nei, mér er ekki sama um líf fólks. Flugvöllurinn í Vatnsmýrinni er bara engin forsenda fyrir lengra lífi eða betri umönnun fólks sem veikist eða slasast. Læknar eru það, lækningatæki, aðstaða og aðbúnaður. Það er mikilvægt að fólk komist til læknis en læknirinn þarf ekki að vera við Hringbraut. Í ljósi atvinnuástandsins á Suðurnesjum þætti mér ekkert úr vegi að fleiri atvinnutækifæri litu þar dagsins ljós. Mér skilst að sjúkrahúsið sé vel búið og því skyldi ekki vera hægt að byggja upp úrvalsaðstöðu þar ef innanlandsflug yrði fært til Keflavíkur? Það er samt ekki eini möguleikinn. Það væri líka hægt að dubba upp á Borgarspítalann. Þyrlur eru vel til þess fallnar að lenda á þökum spítala.

Og ég held að það sé algjörlega tímaspursmál hvenær flugvél missir flugið ofan í þéttustu byggðina í að- eða fráflugi.

Kynslóðirnar sem eru að fá kosningarrétt í Reykjavík munu í hrönnum greiða atkvæði gegn flugvellinum á besta byggingarlandinu í höfuðborginni. Þess vegna er líka tímaspursmál hvenær hann verður fluttur þangað sem hann á betur heima. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

1100 störf tengjast flugvellinum beint og óbeint; það eru því hagsmunir Reykvíkinga að fá að halda honum og meðfram vegna mikilla skatttekna.

82% landsmanna vilja hafa flugvöllinn þarna -- fleiri en þeir (72%) sem vilja "framhald viðræðna við ESB". Þennan vilja til að halda flugvllinum hunza vinstri ráðamenn borgarinnar þótt flokkar þeirra hamist hins vegar vikum saman gegn tillögu Gunnars Braga!

Jón Valur Jensson, 3.5.2014 kl. 03:45

2 Smámynd: Berglind Steinsdóttir

Hafa þessi 82% verið spurð hvers vegna þau vilji halda flugvellinum þarna? Allir vilja hafa gott aðgengi að spítala og flestir vilja gott aðgengi að samgöngum, það er skiljanlegt, en ef fólk væri spurt: Viltu hafa flugvöllinn nálægt hátæknisjúkrahúsi? hugsa ég að svarið væri afdráttarlaust: Já. Ef góð læknisþjónusta yrði byggð upp annars staðar væri fólki sjálfsagt sama þótt flugvöllurinn færi þangað. Og er það ekki óþarflega mikil eigingirni hjá Reykvíkingum (ég er Reykvíkingur) að vilja halda störfunum hér þegar atvinnuástand er verra annars staðar á suðvesturhorninu?

Mér finnst vanta samhengi í málið. 

Berglind Steinsdóttir, 3.5.2014 kl. 18:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband