Þriðjudagur, 31. desember 2013
Kryddsíldin og Saga Garðarsdóttir
Auðvitað sit ég yfir ólæstri Kryddsíldinni á Stöð 2. Nú eru nýir foringjar og þótt stjórnmálahefðin láti ekki öll að sér hæða kennir hér samt nýrra grasa. Þau eru grínaktugari og virðast jafnvel vilja vinna saman.
En hvað um það, Saga Garðarsdóttir leikari fór á kostum í innslagi sínu. Leiðinlegt fyrir fólk að missa af henni. Ef meira sést til gagnrýni hennar megum við eiga von á gleðilegu ári 2014.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 29. desember 2013
Eru konur vanmetin auðlind?
Val á íþróttamanni ársins var tilkynnt í gærkvöldi (ótrúlega vont sjónvarpsefni) og vitaskuld geispaði maður við tilhugsunina. Ég geispaði alltént og þóttist vita að Gylfi yrði fyrir valinu. Auðvitað vissu keppendur hver yrði ekki fyrir valinu, a.m.k. sá sem var valinn númer 1 því að viðtal var tekið við hann í útlandinu sem hann býr í.
Ég get vorkennt honum alveg óskaplega því að nú þegar ég opna Facebook sé ég að vinir mínir af báðum kynjum hafa tekið þetta fyrirbæri, val íþróttafréttamanna, til bæna. Ekki Gylfa, heldur valið. Rökin eru þau að Aníta hafi unnið titla, skarað fram úr, verið fremst og sigrað aðra. Einhverjir hafa orð á því að hún sé í unglingaflokki og ætti ekki að vera tilnefnd yfirleitt.
Ég fylgist ekki nógu mikið með íþróttum frá degi til dags en ég er handviss um að margt íþróttaafrekið er hægt að mæla í mínútum, mörkum og metrum. Hvað vill val íþróttafréttamanna upp á dekk? Er það þá ekki bara huglægt og hrikalega ómarktækt?
Ég geispaði við tilhugsunina um hið fyrirsjáanlega val. Mamma mín, sem er fædd 1927, var hins vegar ógurlega spennt og algjörlega sannfærð um að Aníta Hinriksdóttir yrði fyrir valinu. Pabbi, sem er enn eldri, hélt það líka. Ég get alltént verið kát með það að eiga foreldra sem eru ekki forpokaðar risaeðlur.
Aníta Hinriksdóttir er alveg áreiðanlega óformlegt val stórs hluta þjóðarinnar og óneitanlega þess hluta sem ég tek meira mark á. Gylfi er fórnarlambið hérna.
Og ofan í þetta las ég stórgóðan og málefnalega pistil konu í stjórnmálum sem minnir á að þótt okkur finnist okkur hafa miðað fram á veg er mikið verk óunnið. Við búum enn í afar karllægu samfélagi.
Enn er því við að bæta að á Sprengisandi er núna önnur kona í stjórnmálum að tala um kúltúr miðaldra karlmanna í stjórnmálum.
Því miður þarf enn að minna á að stundum virðist gengið framhjá konum fyrir það eitt að vera konur.
Es. Uppáhaldsfréttastofan mín kom með nýtt sjónarhorn á málið og óskaði Gylfa til hamingju með fyrstu verðlaunin á árinu. Í gær var 28. desember.
Ees. Var að tala við mömmu sem sagði að þau pabbi hefðu steytt hnefann framan í sjónvarpið í gær þegar Aníta var ekki valin. Mamma og pabbi eru alvöru.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 12:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fimmtudagur, 26. desember 2013
Russell Crowe vanmetin auðlind?
Í mörg herrans ár hefur Nothing to Lose verið uppáhaldsmyndin mín. Tim Robbins er góður leikari en aðallega var það handritið sem heillaði mig. Ég sá aldrei fyrir næsta leik, myndin kom mér stöðugt á óvart. Ég hef bara séð hana einu sinni en skima alltaf eftir henni ef ég á leið um dvd-búðir.
Í gær sá ég State of Play í sjónvarpi allra landsmanna. Vá, hvað hún var spennandi og lítt fyrirsjáanleg. Það er eiginlega eina krafan sem ég geri til spennumyndar. Aðalhetjan þarf ekki að geta rennt sér berhent á ógnarhraða eftir grönnum vír og komist skaðlaust frá því. Aðalhetjan þarf sannarlega ekki að vera hönk dauðans. Nei, aðalhetjan má gjarnan vera ástríðufullur blaðamaður sem borðar aðeins of marga ostborgara á pöbbnum og verður dálítið hræddur þegar hann heyrir og sér skyttu í bílakjallaranum.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 22. desember 2013
Justine Sacco
Hún var upplýsingafulltrúi og tvítaði ósmekklega. Færslur geta birst í óteljandi tölvum á sömu sekúndunni, þekkingin eða vanþekkingin breiðst út á núll einni. Nú er Justine mjög umtöluð og komin með marga Twitter-þræði á sínu nafni. Fólki finnst afsökunarbeiðnin hjá henni yfirborðsleg og bera vitni um að hún þurfi lítið að hafa fyrir lífinu en er þess að sama skapi fullvisst að hún landi öðru góðu djobbi fljótlega af því að pabbi hennar er áhrifa- og peningamaður.
Kunnuglegt?
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 21. desember 2013
Væntingastjórnun
Einhverja bestu lexíu í samningatækni er að finna í gömlu Andrésar andar blaði. Jóakim forríka aðalönd átti fataverslun og auglýsti gott verð (kjóll á 99 danskar krónur). Kúnnarnir létu ekki sjá sig. Þá breytti hann auglýsingunni og sagði að kjóllinn hefði kostað 159 en væri kominn ofan í 119. Kúnnarnir rifu flíkurnar út og borguðu glaðir uppsett verð.
Er það ekki alltaf þannig að þegar menn semja kröfugerðir (eða fjárlagafrumvörp) setja þeir fram ýtrustu kröfur með það fyrir augum að slá af? Og þegar allir vita það hlýtur það að gera báða samningsaðila jafnvíga. Af hverju fellur þá fólk alltaf fyrir þessu? Af hverju skipta málefnalegar forsendur ekki máli, rök með málstaðnum?
Ég er ekki kát.
Hitt sjálfið mitt er hins vegar komið í fínasta jólaskap með rauðar og bláar seríur um allt hús.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 15. desember 2013
Jólasmákökur ei meir
Hins vegar er upplagt að hnoða döðlukonfekt.
- Uss, myndin kemur ekki með færslunni, birtist bara hér til hliðar.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 23:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 13. desember 2013
Er betra að vera vondur?
Þessi færsla er ekki um dómana sem féllu í héraðsdómi í gær. Það mál er of stórt til að leggja út af því. Ég myndi vilja lesa mér miklu betur til og samt yrði ég ekki spurð. Ég hef ekki aðgang að fjárúttektum, dagsetningum eða Al Thani.
Nei, ég var að hlusta á Gunnar Smára Egilsson sem fór mikinn um alls kyns mál, þar á meðal kjaramál sem eru áhugamál mitt um þessar stundir. Ég tók um daginn þátt í að setja saman kröfugerð, fara með hana á fund viðsemjenda og fylgja henni eftir. Af því að stéttarfélagið mitt er lítið, en samt með gríðarlega sérstöðu, höfum við ekki verið boðuð á næsta fund. Mér skilst að ég geti beðið um fund en um leið er mér þráfaldlega sagt að ekki verði samið við okkur fyrr en búið er að semja við Starfsgreinasambandið. Við gerum okkur auðvitað vonir um talsvert meira en þessi 3% sem seðlabankastjóri þrástagast á, annars óttast ég spekileka og það gengur ekki þegar ferðamönnum fjölgar og fjölgar.
Okkur í kjaranefnd langar að vera kurteis, málefnaleg og vinna saman að uppbyggingu ferðaþjónustunnar, jafnvel semja til lengri tíma en yrði ekki meira mark tekið á okkur ef við yrðum hvínandi reið eins og Gunnar Smári?
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 9. desember 2013
Martröð minnisleysisins
Þegar fólk á allt reynir annað fólk að gefa því minningar við vel valin tækifæri, eins og á jólum og afmælum. Minningar eru mikils virði. Minningar ylja fólki ef því líður illa og minningar fara í reynslusafnið.
Þess vegna er skelfileg tilhugsun að muna ekki neitt, að vakna óskrifað blað á hverjum morgni, halda að maður sé kannski 17, líta svo í spegilinn og reynast vera 47 ára. Það er skelfilegt að byrja upp á nýtt hvern dag og þurfa svo líka að treysta öðru fólki í einu og öllu, rata ekki um húsið sitt, kunna ekki á síma, vita ekki hvar maður býr.
Þetta er veruleiki Christine í Áður en ég sofna og ástæðan er slys sem hún lenti í. Það sem mér þótti alllengi framan af undarlegt var hversu lítið tengslanetið var. Hún átti eiginmann en ekki foreldra, systkini, vini eða (fyrrverandi) samstarfsfélaga. Eiginmaðurinn fór á hverjum morgni í gegnum lífshlaupið í stuttu máli og svo gekk hún daglega í gegnum það sama, að átta sig, læra á grunnatriðin, alveg skýr í höfðinu en að sama skapi minnislaus. Og eiginmaðurinn í vinnunni.
Bókin er rúmlega 400 síður og þrátt fyrir ágæta spennu er hún a.m.k. 100 síðum of löng. Of margt er endurtekið of oft. Loðmullan gerði það að verkum að ég var komin á fremsta hlunn með að hlaupa yfir tugi hér og þar en þá hefði ég getað misst af mikilvægum vísbendingum.
Eftir 80 blaðsíður var mig farið að gruna hvernig í landinu lægi og ég er ekki sú slungnasta í glæpagátunum. Þannig þykir mér hún hafa orðið fyrir talsverðu oflofi, sagan, en þýðingin var hins vegar afbragð. Þýðandi notaði viðtengingarhátt og býsna oft flókin orð sem hægt hefði verið að þýða með skiljanlegri orðum. Ég fíla það.
Svona nokkuð var sjaldgæft:
Ég átti engra kosta völ nema segja Ben það. (bls. 30)
Enskan skín í gegn, er það ekki? I didn't have any other choice but to tell Ben? Ég átti engra annarra kosta völ en að segja Ben það.
Hégómleg athugasemd við þýðinguna sem var stundum fín og oft ósýnileg en því miður þoldi sagan ekki svona langt mál.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 8. desember 2013
Vanlæsi?
PISA, PISA, PISA. Almennar kannanir og sértækar kannanir eru ekkert hafnar yfir vafa. En ef síendurteknar kannanir benda til afgerandi vondrar niðurstöðu er ekki úr vegi að skoða hvaða leiðir gætu verið til úrbóta.
Á fimmtudaginn var viðtal við konu í Speglinum sem sagði að í Noregi væri ritmálið líkara talmálinu (er það þá ekki nynorsk vs bokmål?) og hélt að það gæti verið ástæðan fyrir almennu læsi til skilnings í Noregi, þ.e. að unglingsstrákar lesa sér almennt til gagns en á móti fer skilningur fyrir ofan garð og neðan hjá 30% íslenskra stráka á sama aldri.
Athyglisvert.
Ég fæ sjálf andarteppu við tilhugsunina um að skrifa *héddna, *telft, *Kebblavík og *hæhda en ég er samt til í að láta skoða hvort lausnin gæti legið í rithættinum, þ.e. að það að færa hann nær talmálinu og fjær upprunanum. Samt er ég mikill áhugamaður um að fara eftir stofninum. Og ég minni á að býsna margir áttu erfitt með að kasta zetunni á sínum tíma en fáir sakna hennar í dag. Ég væri næstum alveg til í að æfa mig í að skrifa ekki ipsilon (y). Þá færum við *ifir, góðir krakkar væru *indi og ein vinkona mín héti *Brindís. Ég *mindi mest sakna þess í viðtengingarhætti þátíðar, sbr. þótt við styngjum af > þótt við *stingjum af. #hrollur Samt til í að skoða það.
Svo var í þessum sama Spegli talað um að börn á máltökualdri væru gjarnan í háværu umhverfi leikskólanna þar sem illa talandi (vegna aldurs) smábörn hefðu hæst. Leikskólabörn heyra oft ekki fallegt, gamalt, gott og gilt tungumál af því að þau heyra mest hvert í öðru. Já, ég held að það sé heilmikið til í þessu. Það þarf að hafa fyrir börnum það sem við teljum fagurt og rétt.
Einhver lagði út af þessu á Facebook í vikunni og fólk sem ég tek mark á fann því strax allt til foráttu, einkum því að laga ritháttinn að framburði. Kannski er niðurstaðan úr PISA ekki slæm í alvörunni en mér finnst eðlilegt að stjórnvöld, þá meina ég yfirvöld skólamála, kanni allar leiðir. Er kannski allt í gúddí?
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 5. desember 2013
RÚV er ekki hafið yfir gagnrýni
Ég hef aldrei unnið á RÚV (hef hins vegar sótt um vinnu þar) og þekki enga innviði stofnunarinnar. Ég veit ekkert um einstaka kostnaðarliði, ekkert um raunkostnað við framleiðslu einstakra þátta og í raun ekki nóg um hvort eyrnamerkt fé fer til RÚV. Mér skilst þó að markaðsdeildin hafi verið varin þegar 39 manns var sagt upp.
RÚV bar á góma í hádeginu. Einn sagði: Það ætti að leggja Ríkisútvarpið niður. Það er fjálglega talað um öryggisþáttinn en þegar á hólminn er komið eru aðrir miðlar á undan RÚV með fréttir af eldgosum ef því er að skipta. Þegar maður keyrir um á vissum stöðum úti á landi nást kristilegar stöðvar og Útvarp Saga en hvorki Rás 1 né Rás 2.
Já, ég verð að taka undir að öryggisþátturinn hefur verið fyrirferðarlítill upp á síðkastið, kannski í mörg ár. Hvaða fjall gaus, og hvenær, og það var ekki hægt að segja frá því í útvarpi allra landsmanna fyrr en einhver landsleikur hafði verið leikinn til síðasta blóðdropa? Að nafninu til er Hekla vöktuð á RÚV-vefnum en núna stendur: Server not found o.s.frv.
Ef RÚV hefur öryggishlutverk verðum við líka öll að vera með stillt á RÚV, er það ekki? Ef einhver er að hlusta á tónlist á Mono eða Rondo missir hann af mikilvægum tilkynningum hjá Ríkisútvarpinu, er það ekki? Eða hefur útvarp allra landsmanna heimild til að rjúfa útsendingar annarra, t.d. ef stríð brytist út? Ég veit það ekki.
Ég ítreka að ég er ekki manneskjan til að stokka upp hjá stofnuninni en ég trúi að það sé hægt að hagræða þar eins og víða. Árshlutareikningur fyrir 1. september 2012 til 28. febrúar 2013 er aðgengilegur og samkvæmt honum var dagskrár- og framleiðslukostnaður tæpir 2 milljarðar en dreifi- og sölukostnaður 238 milljónir. Eðlileg hlutföll? Rekstur og stjórnun tæplega 300 milljónir. Er því fé vel varið?
Krafa margra um að marka stefnu og hagræða svo er eðlileg. Af hverju voru til dæmis þulir reknir með hraði og svo Helgi Pé sóttur til að brúa bil?
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 4. desember 2013
Hver eru viðurlögin við því að brjóta lög um RÚV?
Ég sat með um það bil 1.000 manns í Háskólabíói í einn og hálfan klukkutíma í kvöld. Guðrún Pétursdóttir var röggsamur fundarstjóri sem lagði út af erindum og flutti kveðjur héðan og þaðan. Guðmundur Andri var með brýningu, Melkorka sögustund, Hanna G. Sigurðardóttir dagskrárgerðarmaður (ekki í upptalningunni) tölur úr rekstri, Sigríður talaði sem langtímahlustandi, Benedikt um sameiningu kynslóðanna og Kolbeinn eiginlega líka. Ræðumenn voru yfirvegaðir sem mér finnst alltaf miklu betra. Þótt ég hafi ekkert á móti andagift og stemningsræðum á ég bágt þegar þær verða of tilfinningaþrungnar. Engin ræðan var svoleiðis þótt þau legðu sum út af eigin hlustun og lífi með útvarpinu.
1. gr. laga um Ríkisútvarpið er svohljóðandi:
Markmið laga þessara er að stuðla að lýðræðislegri umræðu, menningarlegri fjölbreytni og félagslegri samheldni í íslensku samfélagi með fjölmiðlaþjónustu í almannaþágu. Ríkisútvarpinu er falin framkvæmd hennar eins og nánar er kveðið á um í lögum þessum. Ríkisútvarpið er þjóðarmiðill og skal rækja fjölbreytt hlutverk sitt af fagmennsku, metnaði, heiðarleika og virðingu. Það skal leggja rækt við íslenska tungu, menningu, sögu þjóðarinnar og menningararfleifð.
Ég var aðeins að velta fyrir mér hver sækir og hver refsar ef þetta ákvæði er brotið.
Einhver ræðumaður hafði líka gluggað í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar:
Íslensk þjóðmenning verður í hávegum höfð, að henni hlúð og hún efld. Áhersla verður lögð á málvernd, vernd sögulegra minja og skráningu Íslandssögunnar, auk rannsókna og fræðslu. Ríkisstjórnin mun vinna að því að auka virðingu fyrir merkri sögu landsins, menningu þess og tungumálinu, innanlands sem utan.
Hún er náttúrlega síðan í maí og kannski dottin úr gildi. Hlutirnir breytast svo hratt orðið ...
Ég hlusta á Bylgjuna og ég hlusta á X-ið (reyndar bara Harmageddon) og þar kennir ýmissa góðra grasa en það er auðmelt spjall og hraðspiluð tónlist að mestu leyti. Rás 1 sinnir allt öðru litrófi og gerir það ein útvarpsstöðva. Málefnalega er bara út í bláinn að slá af svona marga unna þætti.
Hvað veldur því að tónlistaryfirsýninni er kastað fyrir róða? Ég trúi ekki að flokkapólitík eigi hlut að máli. Hvaða flokkur gæti beðið skaða af því að við kynnum betri skil á djass eða blús eða rokki? Eða sígildri tónlist? Á fundinum kom fram að fram til þessa hefur Rás 1 fengið 7% af rekstrarfénu en yfirstjórnin 6%. Það sér hver maður að röðin er alvitlaus.
Es. Starfsmannamál RÚV voru rædd á þingi í dag.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 22:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Mánudagur, 2. desember 2013
Að hringja eða senda sms
Ekkert er mér fjær en að bera blak af Hrannari Péturssyni, talsmanni Vodafone, en ég get ekki alveg látið vera að hugsa hvort hin símafyrirtækin séu nokkru skárri. Eftirlitið gæti verið í molum, þori ekki að fullyrða neitt þar sem ég hef sjálf engan aðgang að upplýsingunum, lagasetning í skötulíki og letin í algleymingi. Viðkvæmar og ofurpersónulegar upplýsingar gera ekkert nema skemmta skrattanum þegar þær komast út á meðal fólks. Ég gluggaði í gullkornin sem einhver setti á Facebook og sá a.m.k. ekki neitt sem varðaði forræðisdeilur eða óuppgerð mál. Ég las sjálfsagt ekki nógu lengi. Ef það er satt að ráðamenn fari á leyndófundi með hagsmunaaðilum er hins vegar allt önnur staða uppi og það hlýtur að verða athugað.
Ég veit dæmi þess að fólk verður að ljúka erfiðum málum skriflega af því að annar aðilinn er ekki til viðræðu. Þannig komast viðkvæm mál á prent þótt fólk reyni að vanda sig og forðast stóryrði. En að þeim dæmum slepptum mætti fólk aðeins líta í eigin barm og hugsa sig um tvisvar áður en það sendir tölvupóst og sms. Það er góð regla að senda ekkert frá sér nema manni væri samt þótt það rataði á forsíður blaðanna. Ég ítreka að þessi regla getur ekki verið án undantekninga en mjög oft hefði fólk gott af að geyma sendingarnar í einhverja klukkutíma og sjá hvort því yrði ekki öðruvísi innanbrjósts að þeim tíma liðnum.
En fjarskiptafyrirtækin hljóta engu að síður að verða undir vökulu auga hvers? næstu mánuðina.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 1. desember 2013
Skæruliði - fasisti - málvöndunarmaður - íslenskuunnandi?
Eftir Orðbragð í sjónvarpinu þar sem Bragi Valdimar sagðist vera skæruliði í prófarkalestri og meðal annars neita að borga í stöðumæli með stafsetningarvillum á ég auðvitað auðveldara með að gangast við mínum fasisma.
Olíu var hellt á þann eld um helgina þegar sumir miðlar sögðu að forstjóri Vodafone ætlaði ekki að segja af sér eftir skandalinn þegar tyrkneski hakkarinn opinberaði persónuleg gögn sem Vodafone átti að vera búið að farga. Forstjóri Vodafone hefur hins vegar ekki verið kjörinn og getur þess vegna ekki sagt upp. Hann var ráðinn til starfa og verður því að segja upp ef hann ætlar að hætta. Sem hann ætlar hins vegar ekki að gera. Forstjóri Vodafone mun sem sagt ekki segja upp vegna trúnaðarbrestsins milli fyrirtækisins og viðskiptavinanna. Sú staðreynd er hins vegar efni í annan pistil.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)