Affarasælla að stela frá fátækum, sagði Halldór Laxness

Fyrir skemmstu heyrði ég mann í útvarpinu lesa nokkrar línur úr Heimsljósi. Því miður hefur mér þótt Ólafur Kárason Ljósvíkingur ofmetinn (sem töffari) þannig að ég las Heimsljós með hangandi haus  og sennilega lokuð augu á sínum tíma og man næsta lítið. Brotið sem maðurinn las í útvarpinu var um það að skynsamlegra væri að stela frá fátækum því að sá sem ætti bara eitt stykki væri jafn fátækur þótt hann yrði af því. Sá ríki sem ætti 100 stykki yrði æfur ef einu stykki væri stolið og væri vís með að eyða mörgum stykkjum til að endurheimta þetta eina.

Sannast hér hvers vegna Halldór fékk Nóbelinn og ég ekki.

Því miður tók ég ekki eftir hverjum var eignuð þessi hugsun í bókinni en mér finnst hún eiga fjandi vel við. Eða kannast menn ekki við að nú sé verið að rífa eignir af þeim sem fáar og litlar eiga? Og bolmagn þeirra til að endurheimta sínar fátæklegu eigur er lítið.

http://www.fva.is/harpa/ljod/thu_ert_sjalfur_laxness.html

Myndin af skáldinu er fengin af síðu fva.is 


Fjölmiðlungar

Nú er búið að kaupa/selja/gefa Moggann. Hann var/er stórskuldugur. Glitnir Íslandsbanki afskrifar þær skuldir í stórum stíl. Og svo á ég að trúa því að Mogginn sé hlutlaus og upplýsandi fjölmiðill. Af hverju tókst honum ekki að reka sig réttu megin við núllið? Hverjum er í hag að kaupa skuldir?

Og allt í einu lýstur því ofan í höfuðið á mér að Björgólfur sem keypti Landsbankann fékk Landsbankann gegn hlutabréfum í sjálfum sér vildi kaupa DV um árið til að leggja það niður. Hann skóf ekki einu sinni utan af því.

Er ekki orðið tímabært að fá fjölmiðlalög í stað þeirra sem var rifist mest um fyrir næstum fimm árum?

Og er ekki öruggt að verði bankarnir seldir aftur verður eignarhaldið dreift?


Enron = Glitnir?

Ég horfði á bandarísku myndina um bandaríska fyrirtækið Enron sem fór flatt á græðgi stjórnenda sinna - og ég sá Bjarna Ármanns. Ég skil ekkert í þessu ... Heitir hann ekki Stilling sem stóð upp og fór frá fyrirtækinu ári áður en allt hrundi? Og af hverju dettur mér Bjarni í hug ...? Ég er að reyna að koma þessu heim og saman.


B-dagur

Ég verð að halda því til haga að í dag eru liðin 20 ár frá því að menn gátu höndlað með bjór á íslenskum knæpum í stað bjórlíkis. Ég hef svo oft ruglast á árum - og þetta er meðal þess fánýta fróðleiks sem maður dembir stundum yfir saklausa farþega í ferð um Ísland. Ef ég man rétt samanstóð bjórlíkið af vodka og pilsner.

Nú erum við aftur komin með gjaldeyrishöft, skyldi bjórinn svo hverfa á næstunni?


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband