Það þurfti jarðskjálfta til að ég sæi ÍNN!


Hvatahópur hættir við!

Ég frétti af hvatahópi sem var væntanlegur til landsins í dag - en hætti við vegna jarðskjálftanna! Sá hópur (eða hópstjóri eða eigandi því að einhver einn eða einhverjir fáir taka af skarið) er greinilega ekki einu sinni pínulítið áhættufíkinn, varla forvitinn - eða hvað? Hvernig er jarðskjálftunum okkar lýst í heimspressunni?

Sjálf sat ég við skrifborð á 1. hæð í Reykjavík og fann fyrir honum. Ég veit um fólk sem var á ferð nálægt upptökunum og fann ekki neitt.

Ekkert manntjón varð og það er fyrir mestu. Ég held að ég geti ekki sett mig í spor þeirra sem ekki þora til Íslands. Og ég grínast sem leiðsögumaður oft við fólk á leið frá Keflavík og segi: Því miður get ég ekki orðið ykkur úti um jarðhræringar eða eldgos ...


Þar kom að fasteignaverðslækkuninni

Samkvæmt auglýsingu um íbúð í 101 sem ég hef fylgst með um alllanga hríð er nú verð farið að lækka í alvöru. Um jólin var hún verðlögð á tæpar 35 milljónir, nú er hún komin ofan í rúmlega 30. 

Fyrir nokkrum dögum sá ég haft eftir einhverjum greiningardeildarmanni að verð færi bráðum að lækka að raunvirði. Jafnframt hvatti hann seljendur til að gera það hið fyrsta! Halda þessir peningaspekúlantar að fólk lesi bara helminginn af fréttinni eða greiningunni, að seljendur lesi bara hvatninguna um að selja og kaupendur hvatninguna um að bíða? Ef fólk tekur yfirleitt mark á spádómum um hegðun fólks höfðar það strax til verðlækkunarinnar sem spáð er síðar á árinu.

Þetta er alveg magnað.

En verðið er farið að lækka. Allir mega vitna í mig með það.


Eldsneytisgjald ferðaskrifstofunnar

Ég er að fara í stórum hópi til Krakár í haust, eftir slétta fimm mánuði. Þegar er búið að rukka staðfestingargjald, kr. 10.000 á mann. Í dag barst þessi póstur: 

 

Kæri hópstjóri

 

Mér voru að berast þær upplýsingar að vegna mikillar hækkunar á verði eldsneytis á undanförnum mánuðum þá mun leggjast til eldsneytisgjald á allar brottfarir sumarsins og haustsins á allar bókanir [XXX]. Þetta er óhjákvæmilegt þar sem fyrir liggur að eldsneytiskostnaður hefur hækkað um 60% frá áramótum. Mun því leggjast til aukagjald á hvern farþega að upphæð 1.200 kr. hvora leið í flugi.

 

Vil ég biðja þig að koma þeim upplýsingum áleiðis til réttra aðila.

 

Með kærri þökk

 

Og hvað gerum vér eymingjarnir? Örgum á blogginu og borgum kr. 2.400 á mann til viðbótar. Bíðum svo spennt eftir að vita hvað gerist þegar eldsneytið lækkar á næstu fimm mánuðunum, ekki satt?

 

Og að hækkunin skuli „leggjast til“ jaðrar við að vera svartur húmor.


Brandari um innlit hjá augnlækni

Pólverji fór til augnlæknis sem spurði hann hvort hann gæti lesið næstneðstu línuna. Pólverjinn las hana án vandræða, człowiek, leit síðan á lækninn og sagði: Ég þekki hann!

Ef einhver ber mér rasisma á brýn brjálast ég fyrir mína hönd og okkar allra sem hlógum dátt á laugardaginn. Það væri samt eftir öðru.


,,Moby Dick on the stick"

Þetta heyrði ég í sjónvarpinu mínu rétt í þessu. Það er auglýsing um hvalkjöt til átu á Sægreifanum við höfnina. Ég borðaði þar humarsúpu í fyrra. Það fer að koma tími á aðra ferð.

Hafnarfjörður 100 ára

Gaman að því. Og ekki spillir veðurspáin að ráði.

Við unnum þó Svía!

Sextánda sætið tapaðist til Spánar sem voru viss vonbrigði en þegar leið á stigagjöfina þótti mínu partíi brýnast að hafa sigur á hinni sænsku Carolu.

Ásgerður fagnaði óskaplega:

Ásgerður tók lagið

Og Ármann rifjaði upp gömlu og góðu taktana:

Ármann og Ásgerður syngja Ánínu

Ásgerður settist stundum:

Ásgerður tyllti sér til að taka mynd

En það stóð ekki lengi:

Og hér hefur Guðný bæst í sönghópinn

Snorri hélt sig til hlés:

Snorri lætur ekki vélast til að syngja, a.m.k. ekki í eldhúsáhöld

En það var ekki í kot vísað hjá Laufeyju:

Hér er Laufey komin á sviðið með Hildi ,,til-að-flýta-fyrir

Og við fengum kvartett:

Ásgerður, Laufey, Ármann, Guðný

Sólveig mundar loftgítarinn:

Gott ef ,,Ein bisschen Frieden, ein bisschen Freude

Myndasafnið er ekki tæmt. Það er hins vegar innsetningarúthald mitt, enda ætla ég ekki að missa af lokaþætti Silfursins.


Eiga próf að vera skemmtileg?

Það stappaði nærri sennu milli mín og ókunnugrar í dag - um próf. Henni fannst að próf ættu að vera skemmtileg. Ég sagðist ekki sammála því, sagði að próf ættu að vera mælitæki. Ef við hefðum þekkst hefðum við sennilega farið í hár saman.

Í prófi eiga að vera léttar spurningar og í prófi eiga að vera erfiðar spurningar. Það má deila um hlutfallið. Þau sem lítið vita þurfa samt að geta svarað einhverju, þau sem mjög mikið vita þurfa að fá að láta ljós sitt skína.

Ef verið er að prófa í gamanleik eru aðrar kröfur en þegar verið er að prófa í ökuleikni.

Það er ekki til vansa að finnast gaman í prófi, rétt eins og það er kostur að finnast gaman að mæta í vinnuna. Mér þætti samt gagnrýni á t.d. mig um að próf hefði verið leiðinlegt hégómleg gagnrýni. En umræðan snerist ekki einu sinni um mig.

Ég myndi heldur ekki biðja um að próf væri leiðinlegt, ég myndi vilja hafa próf sanngjarnt.

Ætli hún hafi gert þá kröfu til sjálfrar sín að svörin væru skemmtileg?


Þeir sem láta sér júróvisjón í léttu rúmi liggja

Sú var tíðin að ég missti ógjarnan af júróvisjón. Þegar ég var au pair í Þýskalandi 1987 horfði ég á Hægt og hljótt í engum félagsskap. Öllum í Bayern virtist a.m.k. standa slétt á sama um keppnina. Ég man þegar Sandra Kim söng J'aime j'aime la vie 1986. Hún vann víst.

Síðan hlýt ég að hafa elst illa. Ég tolli engan veginn við þetta nú orðið þrátt fyrir gríðarlegan áhuga víða í kringum mig. Svo sá ég þegar ég hjólaði milli hverfa upp úr kl. sjö í kvöld að svipuðum er innanbrjósts og mér, alltént var röðin út á götu við pítsustaðinn í Skúlagötunni. Nema tilboðið hafi bara haft vinninginn.


Vegna komu Bobs Dylans

Síðunni barst þessi orðaleikur: 

einu sinni hitti maría markan bob dylan, og bob dylan beit maríu markan í barkann!!  en maría markan var ekkert nema harkan og beit bob dylan í tillann!!!

Og með fylgdi hvatning um að mæta á tónleikana.

 


,,Í dýflissuna með hann"

Þetta er ekki innlegg í heitustu umræður vikunnar, um útlendinga. Sjálf hef ég engan áhuga á að varpa neinum í dýflissu og enn síður langan mig oní hana sjálfa. Hugleiðing mín varðar eingöngu framburð orðsins.

Þetta orð er afskaplega sjaldgæft og mig grunar að þess vegna beri fólk það fram með f-hljóði, eins og heyra má í nýjustu símaauglýsingu Jóns Gnarrs. Þorsteinn Bachmann hrópar orðin í fyrirsögninni, og með skýru effi.

F-ið hljómar hins vegar eins og b í þessari stafarunu, sbr. mörg dæmi: trufla, tefla, tafl, afla, efla, vöflur, tafla, geifla, gafl ... Ég þekki eina manneskju sem ber þessi orð fram með f-hljóði, hinar íslensku þúsundirnar með b.

Í dý-flissuna með hann er því villa - eða hvað segir Ásgerður?


Kjötvísitala Andra Snæs

Fyrir rúmum fjórum árum lagði Andri Snær Magnason fram tillögu um að gera miðbæ Reykjavíkur  mannvinsamlegri. Góður rómur var gerður að henni, hún fékk verðlaun - og síðan hefur ekkert gerst í hans ágætu tillögum.

Ekki er ég skipulagsfræðingur eða arkitekt frekar en Andri, en bæði virðumst við gera okkur grein fyrir að mannlíf gæðir miðborg lífi. Mannskapur fylgir mannfrekri starfsemi eins og verslun, banka og skóla. Kjötvísitalan hækkar. Sólin kemur að sunnan og þess vegna þarf að hafa lægri byggð til suðurs en hærri byggð má verða norðan megin.

Ég vil halda Hallargarðinum lítt breyttum, en ég sé varla nokkurn tímann kjaft í Hljómskálagarðinum. Þar vantar skjól og þess vegna vantar þar meira líf, m.a.s. á góðviðrisdögum.

Auðvitað er gamli fámenni tíminn horfinn inn í fortíðina og við endurheimtum ekki heimavinnandi foreldra sem sjóða ýsu í öllum hádegjum og lygna augunum meðan þau hlusta á hádegisfréttir. Krakkar hlaupa ekki um á bryggjunni og reyna að öngla til sín marhnút. En það er hægt að tengja hverfin betur (helv. Hringbrautarskrímslið) og það er hægt að hlúa að líflegri starfsemi.

Það sem ég hlakka til þegar a.m.k. stoppistöðin fer. Er það ekki Landsbankanum að þakka? 


Skemmtiferðaskipin taka á rás

Ég fæ nettan fiðring þegar ég sé að skemmtiferðaskipastraumurinn er að hefjast. Við leiðsögumenn erum nefnilega svo misjöfn og ég hafði gaman af dagsferðunum. Það var bara svo lýjandi að mæta einn daginn á Skarfabakka kl. 6, annan á Miðbakka kl. 7, þann þriðja á Miðbakka kl. 6:30 o.s.frv. Heilt sumar hrökk ég upp morgun eftir morgun og þurfti að rifja upp hvort ég ætti að mæta, hvar þá og hvenær.

Allt hefur sinn tíma.

Sumir leiðsögumenn vilja ekkert nema hringferðir, eru hrifnir af svona langtímakynnum ...


Matreiðsluþættir í sjónvarpinu

Alveg er það magnað hvað margir matreiðsluþættir, og rómaðir þess vegna eins og þættir Nigellu og Jamies, byggja mikið á alls konar óhollustu. Ég man enn gjörla þegar ég sá í fyrsta skipti Nigellu-þátt; hún smurði hvítt brauð með einhverju feitu og djúpsteikti meðan hún talaði um hvað það væri gott að gera eitthvað svona fljótlegt handa börnunum þegar þau kæmu heim úr skólanum. Og upp rifjast brauðið sem mamma smurði með tómatsósu og osti og setti í ofninn, skömminni skárra en það sem Nigella gerði þarna í snatri.

Mér finnst að í þessum þáttum ætti að kynna fyrir okkur fljótlegar, hollar og hagkvæmar lausnir. Það er kannski vegna þess að þættirnir eru ekki svoleiðis sem ég nenni hvorki mikið að horfa né elda.

Að auki er maturinn oft ekki einu sinni girnilegur að sjá.

Picture of Chicken Pieces - Chinese Food - Free Pictures - FreeFoto.com

Fullkomnunarárátta er bögg

Stundum er hægt að skipuleggja hlutina út í hörgul og hafa fullkomna stjórn á öllu og öllum. Stundum er stjórnin ekki öll í manns eigin höndum og það eina sem maður getur gert er að láta vel að stjórn annarra (og svo stýra laumulega ef maður er svoleiðis innstilltur).

Ég er t.d. að tala um leiðsögn. Þegar hópstjórar halda eftir tveggja tíma dvöl á landinu að þeir viti betur hversu langan tíma tekur að komast á milli staða, gleyma að reikna með tímanum sem tekur fólk að klifra út úr bílunum, og inn aftur eftir stoppin, vita ekki um færðina á drullulegum malarvegum o.s.frv. á ég ekki í sérlega miklum erfiðleikum með að leyfa þeim að ráða (eða leyfa þeim að halda að þau hafi ráðið). Ég leyfi þeim að skammast, horfi bara nikkandi á og svo seinkar okkur kannski um klukkutíma.

Samt er erfitt að þjóna mörgum herrum. Hver borgar t.d. aukatíma 30 jeppa? Kvöldmatur er bókaður á einhverjum ákveðnum tíma. Er það hópstjórinn afskiptasami sem borgar muninn, eða hvar kemur hann niður?

Kannski þarf ég að breyta um taktík og vera frekari við afskiptasama hópstjóra - en hingað til hefur enginn dáið, enginn slasast og ég veit ekki til þess að neinn hafi farið fram á endurgreiðslu ferðar.

Það er svo mikið bögg að trúa því að allt geti alltaf verið 100%. Einn farþegi dásamar kannski sögurnar sem maður segir en sessunauturinn fussar yfir lyginni. Einum getur þótt krúttlegt að heyra mismæli og hvernig maður bögglar stundum út úr sér setningunum en öðrum misboðið að tungumál manns sé ekki óaðfinnanlegt. Einn vill meiri jarðfræði, annar meiri sagnfræði, sá þriðji minna af öllu. Ég held að maður verði bara að standa með sjálfum sér og sætta sig við að maður er gallaður.

Fullkomnunarárátta er nefnilega svo mikið bögg, þá er maður aldrei ánægður og lífið allt tóm óhamingja. Ég átti það skeið. Og þegar maður er leiðsögumaður á maður mikið undir öðrum líka og ef maður er hæfilega afslappaður má maður eiga von á góðu.

Það finnst mér - að svo komnu máli. Ætla að spekúlera í þessu (og vona að Habbý heimti ekki frekari útfærslu ...).


Egg soðin og brauð bökuð í hver

Leiðin lá út úr bænum í dag, m.a. á hinn rómaða Geysi. Þar tók kokkurinn sér það fyrir hendur að baka brauð í hver og sjóða egg í sama. Það þótti mér gaman. Ég hef tvisvar soðið egg fyrir túrista, bæði skiptin í Deildartunguhver. Í bæði skiptin mæltist það vel fyrir. Þetta er einstök upplifun.

Kokkurinn hanterar hverabrauðið

Kokkurinn gerir að rúgbrauðinu. Hvort ætti maður að kalla það Roggenbrot eða Pumpernickel á þýsku?

Og í þessari holu var brauðið bakað

Í þessari holu eru m.a.s. nægar birgðir handa spænska kónginum (tilvísun í heimsókn hans til Vestmannaeyja eitt árið ...).


Greiðvikni yljar

Ég átt leið milli borgarhluta á hjóli í dag (Ísland á iði, allir í hjólaátaki), sá að ég þurfti að pumpa í dekkin og renndi upp að pumpu á bensínstöð. Þar var bíll fyrir og bílstjóri. Ég hélt að hann væri að klára en þvert á móti var verkið óhafið þannig að hann gerði sér lítið fyrir og pumpaði í dekkin hjá mér meðan ég virti bara fyrir mér útsýnið.

Það fannst mér krúttlegt.


Valdarán?

Tilfinning mín er að það hafi aukist verulega að undanförnu að menn skipti um flokk á miðju kjörtímabili. Ég held líka að oft hrópi einhverjir valdarán, svik við kjósendur og/eða lýðræðishalli og skíti stórkarlalega út viðtökuflokkinn.

Ég man að Kjartan sagði æstur um árið að menn skiptu ekki einu sinni um fótboltalið á miðju tímabili.

Fólki blöskar hvernig atkvæðin þess taka til fótanna.

Ég held að það vanti einhverjar reglur um þetta. Má fólk eða má það ekki skipta um flokk og flytja atkvæði kjósenda sinna til jafnvel höfuðandstæðingsins? Ef það má getur fólk hætt að hafa hátt um óréttlætið sem er þá ekkert. Ef það má ekki en er ekki bannað í reglum er ástæða til að setja reglu um það. Ef menn eru þá sammála um að það sé málið.

Ég er hlynnt því að fólk tali um hlutina. Mér finnst orðið tímabært að fólk tali æsingalaust um þetta og finni lausn.

-Að auki hef ég mikla skoðun á Akranesmálinu en ætla að hafa hana fyrir mig, m.a. vegna þess að þrátt fyrir mikil skrif eru þau fyrst og fremst skoðanir fólks, ekki staðreyndir.


Nú þykja mér nautin rekin (á Viðskiptablaðinu)

Ég hef verið nokkuð dyggur lesandi Viðskiptablaðsins, einkum á föstudögum, og talsverður aðdáandi fjölmiðlapistlanna og ýmissa pólitískra skrifa sem ég er stundum sammála og stundum ósammála.

Á föstudaginn var barst blaðið inn um lúguna hjá mér til kynningar. Greinilega eru blaðshaldarar á höttunum eftir fleiri lesendum, þannig fleiri áskrifendum geri ég ráð fyrir og auknum aurum í kassann. Og þá bregður svo við að blaðið er illa yfirlesið.

Þrjú dæmi:

Hitt er svo annað mál að það er ávallt afnaumkunarvert þegar stjórnmálamenn barma sér undan fjölmiðlum ...

 

Rétt fyrir aldamót tók Boris við ritstjórn hins fornfræga tímarits The Spectator - eitt helsta málgagn hægri manna á Bretlandi.

 

... hefur Boris vaxið ásmegin sem einn helsti andskoti þeirrar leiðinlegu tilhneigingu ...

Eins og þetta er gott blað. Kannski ætti ég að gleðjast yfir að sjá að prófarkalestur skiptir greinilega máli, hann hlýtur að hafa farið forgörðum þarna.


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband