Fimmtudagur, 4. júní 2009
Stiklað á ferðasögu
Amsterdam - 0032-49... - Hreinn - jarðarber - Wiertz - nehhei! - Place Lux - Evrópuþingið - Duvel - Matti - BL - skógur - Isidore - Hawaii - laid - sinker & floater - sandalar - dýraslagur - tíhí - Are you Spanish? - Tinni - Tobbi (Snowy) - Hergé - atómið - Ertu að segja að ég sé ljóta systirin? - Hema - suður- og vestursvalir - evra - nehhei - Hvað ertu búin að læra í kvöld? - sveppasósa - gulur boxhanski - afmæli - kökurass - nehhei - Komdu mér á óvart. - Judas - partakláði - Tinni - rúsínubrauð - rúllustigar - blanche - svaladrykkur - sár á milli tánna - Mannequin-Pis - Magritte - Eigum við að ræða það eitthvað? - Ekki viltu brenna. - un glace - MERCI - franskar - bestu frönskurnar - Per Andreas - H&M - moulin frites - Ertu að ljúga þessu? - Hema - Kolbeinn kafteinn (Captain Haddock) - Zombi - veraldarvefurinn - nehhei? - Hreinn, ertu að ljúga? - s'il vous plait - Evrópusambandið - Millenium - pardon - ekki einu sinni partakláði - indverskt - þriggja landa sýn - Magritte - metró - lundi - mæjónes - Brusselhlaupið 20 - djúpur - kúlur (ekkert lán) - Var það komið fram í þættinum? - ævintýri á gönguför - sendiráðið - hýra hverfið - nehhei - sólarvörn - gestabók - Írland - 11. júlí - Hljóðfærahúsið - nehhei - Millenium - kræklingur - ostrur - vaffla, loksins - París
Gaman? Öö, eigum við að ræða það eitthvað?
Veður? Já, geðveikt.
Fólk? Jahhá.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Miðvikudagur, 3. júní 2009
Millenium í Brussel
Það var mikið malað í bíó í Brussel í gær. Við sáum myndina sem er gerð eftir fyrstu bók Stiegs Larssons hins sænska, myndina sem heitir á útlensku Millenium eftir tímariti þeirra Mikaels og Eriku. Það er gaman þegar æðið grípur mann og maður finnur að enn er hægt að sogast með.
Myndin er ríflega tveir tímar og ég undi hag mínum hið besta allan tímann. Textinn var á sænsku og skjátextinn á frönsku og flæmsku.
Að öllu samanlögðu skildist allt hið besta (enda er ég nýbúin með fyrstu bókina og vel byrjuð á bók 2). Leikarinn sem lék Mikael vann skemmtilega á meðan myndinni vatt fram, leikarinn sem lék Lisbeth var aðeins of kvenleg miðað við upplifun mína af bókinni, leikarinn sem lék Henrik Vanger var helst til hraustlegur fyrir minn smekk - en, ó, það var svo gaman að fara í bíó og sjá myndina sem við vitum að kemur ekki heim. Bjurman var alveg eins ógeðslegur og ég reiknaði með og allar senurnar með honum snertu viðkvæmu taugarnar í mér. Ég tók fyrir augun og hryllti mig. Tel ég mig þó enga meðalkveif. Kannski var ég svona ánægð með leikarana af því að ég þekkti ekkert þeirra fyrir.
Það var samt dálítið kalt að koma út eftir miðnætti.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)