Rusl í Reykjavík

Í dag er þriðjudagur og ég hélt að búið væri að tæma tunnurnar síðan í síðustu viku. Ég veit ekkert af hverju ég hélt það, ég man alls ekki hvaða daga ruslið er tekið. En ég veit að gráa tunnan - sem er núna í eintölu en var í fleirtölu þangað til í fyrravetur - fyllist aldrei á meðan græna tunnan og bláa tunnan fyllast oft. Ég þarf oft að fresta því að henda flokkuðum pappír og flokkuðu plasti af því að tunnurnar eru fullar. Hér var ég búin að þjappa vel.

Og ég bíð enn mjög spennt eftir lífrænu tunnunni sem í mínum augum yrði meiri bylting en mislæg gatnamót á Bústaðaveginum.

Hvar er lífræna tunnan mín?

 

ruslið


Fálkaorður

Að minnsta kosti einn fálkaorðuhafi var vel að henni kominn í fyrradag, Guðni á Þverlæk. Ég er víst Rangæingur í grunninn eins og Guðni og við Trausti bróðir rákumst á hann þegar við þvældumst um Holtin fyrir tveimur árum. Trausti, sem er talsvert eldri en ég og var mikið í sveit þarna á sínum yngri árum, sagði mér þá undan og ofan af þessu áralanga háttalagi Guðna, að safna dósum - forða þeim frá verri örlögum í leiðinni - og láta hverja einustu krónu renna til ungmennafélagsins. Ég get ekki annað en tekið hatt minn ofan fyrir honum og fagnað því að orðunefnd hafi séð skynsemina í að heiðra hann.

Guðni á Þverlæk


Útgáfa á vef - stafræn framtíð

Ég hnaut um Lögmannablaðið þegar ég var að fletta Facebook áðan. Þar er fjallað um ýmislegt sem ég hef áhuga á, m.a. ráðstefnu sem ég sat, leshring sem ég var þátttakandi í og málþing á Patreksfirði sem ég fór næstum á.

Ég er búin að lesa helminginn og það eru umtalsverðar líkur á að ég lesi það í hinum helmingnum sem höfðar til mín --- af því að ég er með það í tölvunni en ekki sem tímarit á borðinu.

Internetið er til muna yngra en ég þannig að nú ætla ég að taka hatt minn ofan fyrir fjórðu iðnbyltingunni sem hefur sannarlega haldið vel á spöðunum síðustu áratugina. Stundum finnst mér nefnilega sjálfvirknivæðingin of hæg en þá er gott að minna sig á að nýjungar þarf að prófa áður en þær eru settar í umferð. Við getum t.d. hugsað okkur svokallaða réttarvörslugátt sem er á mikilli siglingu en má ekki fara fram úr sér vegna þess að þá gæti orðið uppi réttaróvissa.

Í hnotskurn: Frábær sigling í rafrænni samtíð og framtíð. Frábær samtími!


Hjólahvísl

Það er svakalegt að hjólum sé stolið í massavís. Og það er þannig, nú ríkir faraldur. Annars hefði Bjartmar hjólahvíslari ekki orðið svona opinber persóna. Lögreglunni virðist vera alveg sama, er kannski of fáliðuð, of peningasvelt, of áhugalaus eða allt þrennt. 

En í dag endurheimti ég hjól sem var stolið frá mér fyrir tæpum mánuði. Þetta var ekki burðugt hjól. Það kostaði 70.000 fyrir þremur árum og hefur verið notað drjúgt í þrjú ár. En það dugir og þess vegna var gott að fá það til baka.

Sá sem fékk það upp í hendurnar auglýsti það á Facebook-síðu, vinkona mín kom auga á það og sendi mér ábendingu. Sá sem var með það var í virkri neyslu þangað til fyrir þremur árum en er nú búinn að snúa við blaðinu, innilega glaður og jákvæður fjölskyldufaðir.

 

endurheimt Head-hjóls 2022

Héðan í frá ætla ég að hafa hjólið oftar inni og ég ætla að kaupa mér betri lás. Auðvitað borgaði ég hjólahvíslaranum fyrir viðvikið en við viljum ekki að hann hafi of mikið að gera við að sortera stolin hjól, auglýsa og geyma heima hjá sér.

En ég fékk ögn meiri trú á hið góða í fólki í dag.


Stjórn Festar ...

Ég er ogguponsusvekkt yfir RÚV sem er útvarp og sjónvarp í almannaeigu. Í kvöldfréttum særðu fréttamenn ítrekað í mér eyrun með því að beygja Festi Festis í eignarfalli. Ég var úti á gangi og hugsaði að ég hefði aldeilis skriplað á skötunni ef þetta væri eftir málstaðli. Svo leit ég inn á Vísi.is sem er miðill á markaði og þar er Festi Festar í eignarfalli, eins og beygingarlýsing íslensks nútímamáls útleggur sem rétt.

Af hverju ætti Festi að vera hvorugkyns? Af hverju gá ekki fréttamenn RÚV sem puðra þessu orði út ítrekað áður en þau byrja að puðra? Hvað með málfarsráðgjöf?

Ég er ekki viðkvæm fyrir málbreytingum og þoli ágætlega einstaka villur. Ég geri bara meiri kröfur til ríkisútvarpsins sem er á fjárlögum og kostar skattgreiðendur mikla peninga. Piff.


Strætó eða fluglest

Ég tók einu sinni strætó úr Hlíðunum og til Keflavíkur á útleið og heim aftur nokkrum dögum seinna. Það tók lungann úr deginum í báðum tilfellum og var þó einungis gerlegt af því að flugtíminn var á björtum vetrardegi.

Ég skil ekki, hef ekki skilið og mun ekki skilja þennan fortakslausa skort á áhuga á að koma til móts við markaðinn. Við viljum ekki öll láta skutla okkur á einkabíl og við viljum heldur ekki bíða óratíma eftir að 60 sæta rúta fyllist. Og það er óboðlegt að strætó feli sig í fjarlægri götu og rúnti tómur um götur Njarðvíkur.


Fasteignamatið

Mér blöskrar ekki þótt ég þurfi að borga 20% hærri fasteignagjöld. Mér svíður hins vegar ábyrgðartryggingin á bílnum sem hefur örugglega hækkað mun meira en þetta með einhverjum hliðargjöldum sem óinnvígðir átta sig ekki á. Og, takið eftir, þrátt fyrir fjölda tryggingafyrirtækja er ENGIN VIRK SAMKEPPNI milli þeirra.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband