Mánudagur, 13. ágúst 2007
Og hús rís í Hafnarfirði
Ég fór í Áslandið (númer 3?) til að skoða holu en þar var kominn grunnur:
Og heiðurinn af honum eiga Marín og Steingrímur:
Á bílnum sem ekki var keyptur fórum við stöllur úr grunninum á Reykjanesið til að fara í Grindavíkurgöngu með Sigrúnu Franklín Jónsdóttur sem sjá má á næstu mynd:
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 12. ágúst 2007
Habbý var heima með alla fjölskylduna - í myndum
Það kom á daginn í Þverárdal að kind hafði kúkað á veröndina. Við erum enn að undra okkur á að kindin hafi spásserað upp tröppurnar, skilið eftir sig ... ummerkin og prílað aftur niður.
Í stofu Mælifellsár. Svona skilst mér að kvöldunum sé eytt við gamansögur og axlanudd. Það hrakti ekki Gerður ...
... og ekki heldur Jörgen.
En sérstakt áhugamál mitt er að fá kindur til að líta upp úr grasbítinu - og það tókst, sjá:
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Laugardagur, 11. ágúst 2007
Fælingaráhrif fréttaflutnings
Mér hafði dottið í hug að fara á Fiskidaginn mikla sem svo mjög er rómaður á Dalvík. Þegar hins vegar stríðar fréttir berast af margmenninu fallast mér hendur og bíllinn sjálflæsist og fælist með manni og mús. Kæmist einn bíll til viðbótar inn í bæinn eða á maður að leggja við Árskógsströnd og labba þaðan? Fengi maður gistingu?
Þetta er eins og þegar metsölubækur seljast út á það helst að vera metsölubækur.
Nei annars, það er ekki alveg sambærilegt, ég veit það. Fiskidagurinn er búinn að sanna sig.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Föstudagur, 10. ágúst 2007
Óreimt á Kili
Ferðaþjónar biðja mig ekki að fara inn á Hveravelli fyrir sig þannig að ég sá mína sæng útbreidda og fór þangað sjálf á órafmagnaða lánsjeppanum. Og nú er ég hálfnuð með hálfhring á Íslandi, komin í Skagafjörð yfir Kjöl, og hiss ferðarinnar eru nokkur. Umferð var sáralítil í gær, fimmtudag, svo lítil að ég hefði næstum getað orðið úti í einrúmi. Fátt var um manninn á Hveravöllum, ekki of fátt en mun færra en ég hefði búist við þegar maður heyrir í sífellu að ferðamenn nálgist 500.000 á ársgrundvelli. Ekki er þá heldur að sjá í stórum stíl í Skagafirði.
Fyrir mjög mörgum árum fór ég Kjöl og Sprengisand nokkrum sinnum og í minningunni var svo miklu meira að sjá á Kili. Nú fann ég þar aðallega gott veður og þokkalegt skyggni - og svo náttúrlega Hveravelli. Beinhóll er 7 km út fyrir veginn og vegurinn þangað hrein hörmung. Og ekki er Kjalvegur beint vænn við menn og málleysingja. Ég fór að hugsa um alla hvataferðahópana mína sem emja yfir að þurfa að sitja í jeppa í tvo tíma frá Langjökli og í bæinn. Þeim væri ekki skemmt á Kili þótt mér hafi líkað kyrrðin og Palli-var-einn-í-heiminum-tilfinningin. Ég stoppaði bílinn þar sem mér sýndist þegar mér sýndist, lygndi augunum og horfði með eyrunum.
Það var eitt hlið vegna sauðfjárveiki, þarf ekki að loka beggja vegna við eitthvert hættusvæði, hehhe?
Blöndulón var blárra en Bláa lónið þessi dægrin.
Nú er ég, suðvesturhornsleiðsögumaðurinn, búin að koma rækilega upp um mig.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 8. ágúst 2007
Jákvæð stroka (eins og góðkunningja mín notar fyrir hugtakið hrós)
Verst að viðkomandi bensínstarfsmaður mun ekki lesa þetta.
Ég fékk sem sagt lánaðan jeppa í dag. Í greiðaskyni fannst mér sjálfsagt að kaupa bensín og fór á bensínstöðina í Ártúnsholti sem lá beinast við. Þá sá ég að eitt dekkið var ekki vel loftfyllt og sneri mér að starfsmanni sem reyndist hinn liprasti, mældi og dældi.
Í nærumhverfi mínu heitir þetta að taka ljóskuna á málið (en þess var ekki þörf þar sem ég virkilega skildi ekki tölurnar (26 - 13 - 32 eða eitthvað) og hann var einfaldlega lipur starfsmaður).
Svo varð jeppinn rafmagnslaus ...
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þriðjudagur, 7. ágúst 2007
FIT
Þar sem ég átti sjálf aldrei ávísanahefti verð ég að rifja upp reynslusögu úr fjölskyldunni. Systir mín sem er ógurlega grandvör og nákvæm gaf einu sinni í ógáti út of háa ávísun miðað við stöðuna á reikningnum. Hún átti kannski 9.000 en skrifaði 10.000. Henni var gert að greiða dráttarvexti af upphæðinni í heilan mánuð.
Mér fannst illa farið með hana.
Ef menn geta núna farið yfir á rafrænum debetkortum finnst mér að bankarnir eigi að taka til hjá sér. Ef menn þurfa að skulda eiga þeir að fá yfirdráttarheimild, ekki fara óvart yfir.
Þetta vekst upp fyrir mér vegna umræðu um breytingar á þessum kostnaði, ég finn bara ekkert um það á mbl eða vísi.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 6. ágúst 2007
Gaman að dönskunni
For Ellamajas skyld må jeg bare si' at jeg så den danske film Rembrandt i weekenden - og den var helt dejlig. Danske film rokker ... De uheldige tyve stjal det eneste ægte Rembrandt-maleri sem fandtes i Danmark - og måtte give det tilbage. Eller hvad, hehe?
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Föstudagur, 3. ágúst 2007
Í ótíðinni las ég bók
Ég er (fyrrverandi) bókabéus en mér hefur lítið orðið úr lestri það sem af er þessu ári. Nú hef ég þó náð að lesa Sendiherrann eftir Braga Ólafsson.

Ég hef sérstakt dálæti á skáldsagnahöfundinum Braga en kann síður að meta ljóðin hans. Þó er hann meiri stemningsmaður en maður mikillar og skýrrar framvindu í söguþræði. Hér kynnumst við Sturlu sem er ljóðskáld og húsvörður. Flestar persónur Braga hafa verið þvílíkir öndvegislúserar í gegnum þykkt og þunnt að það verður að hrósa Braga fyrir að gera persónurnar samt áhugaverðar. Sturla er hins vegar ekki tiltakanlega misheppnaður, þvert á móti hefur honum tekist að koma fimm börnum til manns ásamt því að slá lauslega í gegn í bókmenntaheiminum. Og það var lengst af spennandi að fylgjast með honum missa af ljóðahátíðinni í Litháen.
Ágæt sumarlesning.
Hitt undrar mig að framan af talar Sturla (eða höfundur) um litháensku og skiptir svo yfir í litháísku. Vissulega smáatriði en samt ónákvæmni sem yfirlesari ætti að koma auga á. Og svo sá ég á stöku stað glitta í ensku þótt bókin sé áreiðanlega ekki þýdd!
-skrifaði Berglind um kvöldmatarleytið í stað þess að vera á leiðinni til hinna fyrirheitnu Vestmannaeyja
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Fimmtudagur, 2. ágúst 2007
Hús- og læknisráð
Ég sullaði feitum mat í peysu sem ég var í nýlega og eftir sat fitublettur. Ráðagóðar húsmæður bentu mér á að hella yfir einhverju fitulosandi og láta liggja um stund áður en ég setti hana aftur í þvottavél. Þetta svínvirkaði.
Nú auglýsi ég eftir læknisráði. Ég er með eyrnaverk (eins og ég ímynda mér að ungbörn fái). Hann er mjög þrálátur og hefur áhrif á allan kjálkann vinstra megin. Það er erfitt að borða sem ætti ekki að vera mikill skaði en það er samt óþægilegt. Tilkenningin er svolítið eins og sársaukafull hella sem ekki fer. Kannski er ég komin með vatnshaus af tíðum sunduferðum. Hefur einhver læknisráð við þessu?
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Miðvikudagur, 1. ágúst 2007
Svo er að heyra sem blaðamenn þurfi ekki að horfalla
Ef eitthvað er að marka upptalninguna sem ég heyrði í útvarpinu áðan var Sigurjón M. Egilsson ritstjóri með vel á þriðju milljón í laun til jafnaðar á mánuði á síðasta ári. Megi hann vel njóta. Við sátum hins vegar fjórar spekúlöntur á mánudagskvöldið og krufðum heiminn og þegna hans og ég held endilega að einhver hafi vitað eitthvað um bág kjör blaðamanna.
Kannski var það bara ranghugmynd mín.
Maður ætti að óska Hreiðari Má til hamingju með að standa undir rekstri heils menntaskóla, það er vel í lagt. Og í dag var mér bent á hið augljósa sem mér yfirsást samt, nefnilega það að 400 milljónirnar eru ekki skattur af launatekjum heldur áreiðanlega ekki síst hlutabréfum sem eru með 10% fjármagnstekjuskatt. Mikið óskaplega hlýtur maðurinn að vera bankanum mikils virði.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)