Laugardagur, 4. október 2008
Ævintýri í Grafarvogi
Ég tók óbeinni áskorun dr. Gunna eftir að hafa heyrt hann lesa upp í Silfri Egils þau fyrirtæki sem sniðgengju okur og ákvað að kaupa símann minn í Símabæ. Hann er skemmtilega staðsettur í Hverafold þannig að kaupin kölluðu á útsýnisferð með strætó sem varð síðan hin forvitnilegasta göngu- og strætóferð um innviði Grafarvogs þar sem mér tókst að hneyksla Grafarvogsbúa með að hafa ekki hugmynd um hvar Spöngin væri. Það er annað vers og verður ekki farið nánar út í hér.
Undanfarið hef ég leitað grimmt að íbúð til kaups í miðborginni en svei mér ef ég fer ekki bara að skoða auglýsingar úr 112 Reykjavík. Rimahverfið var a.m.k. mjög heillandi.