Táknrænt afrán

Þegar hátekjuskattur var við lýði minnir mig að mér hafi þótt hann hafi miðast við helst til lágar tekjur. Það kann þó að vera misminni, svo langt er síðan hann var afnuminn.

Hvað eru margir Íslendingar með meira en milljón á mánuði? Ef þeir borguðu 50% - þótt ekki væri nema af því sem er umfram milljónina - gæti munað nógu mikið um það til að lyfta persónuafslættinum þannig að skattleysismörk færu í 150.000 kr.

Eða hvað?

Lágtekjufólk hefur alveg lyst á táknrænunni.

Sjálf gæti ég vel borgað táknrænan hátekjuskatt - ef ég vissi að bomburnar borguðu sinn skerf.

Hvernig er það annars með eldflaugarnar [t.d. Bjarna, Björgólf og Jón] sem borga í mesta lagi táknrænt útsvar - nýta þær sér ekki samfélagslega þjónustu eins og gatnagerð og skóla?

Ó, var ég kannski ósanngjörn núna við þessa greiðviknu einstaklinga sem borga í krónutölu meira en ég og mínir líkar, bara af svo gríðarlega miklum ránsfeng? Í dag var rætt um fjárlög næsta árs og miðað við það sem ég hef fleytt ofan af umræðunni virðist eiga að skerða samfélagsþjónustuna mest. Ég kýs að þakka Jóni, Hannesi, Björgólfi, Bjarna og e.t.v. Kristínu það.

Er ekki kominn tími til að þau sem kostuðu okkur stórfé borgi það til baka? Var gerningurinn e.t.v. bara táknrænn?


Gullfóturinn í Esjunni

Í Grapevine, íslensku mánaðarriti á ensku, er aðsend grein frá útlendingi sem stingur upp á því að við sækjum gullið hans Egils Skallagrímssonar - sem er sjálfverðtryggt - og nýtum til að hífa okkur upp úr efnahagsöldudalnum.

Þetta finnst mér stórfyndin tillaga og minnir mig umsvifalaust á önnur hulin verðmæti, t.d. í Mosfelli þar sem einn fornaldarríkisbubbinn á að hafa látið þræla sína fela kistu fulla af gulli og drepið svo og í Skógafossi þar sem önnur gullkista marar víst á botninum.

Grömsum bara í öllu og leitum að gulli og silfri, kannski bara olíu í leiðinni ...


Bloggfærslur 15. desember 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband