Deyr ekki DV drottni sínum (hver er sá drottinn?) án frekari aðkomu okkar?

Þarf eitthvað að ræða það frekar? Trúverðugleikinn gufaði upp. Ég viðurkenni að ég hélt að Reynir væri nagli. Ég hafði rangt fyrir mér. Ég skal axla ábyrgð og lofa að hætta að lesa DV.

Það er reyndar eitt sem ég vildi ræða, dreift eignarhald fjölmiðla. Menn virðast gleyma því aftur og aftur að við búum ekki í mjög heilbrigðu samkeppnisumhverfi - það gerir mannfæðin. Það er og verður alið á tortryggni í garð fjölmiðla og banka áfram og áfram og áfram nema ramminn verði skýr - dreift eignarhald.

Hvað dvelur orminn langa?

 

 


mbl.is Reynir biðst afsökunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég þekkti einu sinni heildsala

Ætli það séu ekki svona 10 ár síðan ég var í mjög góðu vinfengi við heildsala í Garðabæ. Hann fór aldrei í Bónus nema tilneyddur vegna þess að Bónus kúgaði hann og fleiri sem hann þekkti til að selja sér vörur undir framleiðsluverði. UNDIR framleiðsluverði, ég veit allt um það.

Af hverju sætti hann sig við það?

Vegna þess að Bónus var með svo mikla markaðshlutdeild.

Og hvað gerðist?

Heildsalinn lét litlu búðirnar borga mismuninn.

Og hvað meira gerðist?

Kaupmennirnir í litlu búðunum fóru stundum í Bónus og gerðu magninnkaup vegna þess að varan var ódýrari þar en hjá heildsalanum. Heildsalar hafa engin samtök, er það nokkuð?, og litli neytandinn hefur ekki öflug samtök. Niðurstaðan er að við töpum öll.

Og höldum áfram að mæna aðdáunaraugum á rustann með verðsvipuna. Líka ég. Með tár í augunum. Hann er ódýrastur - sama hvað það kostar. Jón Gerald segir að Bónus stingi 2-3 milljörðum á ári í vasann. Hvað veit ég? Aðallega veit ég að virkt aðhald og eftirlit á Íslandi er í molum, núna líka DV og kannski m.a.s. Útvarp Saga.

Hvað veit ég þegar ég fæ ekki upplýsingarnar?


Bloggfærslur 16. desember 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband