Skásti peningabankinn

Um síðustu mánaðamót gleymdi ég að borga greiðslukortsreikning upp á 94.148 kr. þegar ég fór yfir hann í heimabankanum. Tæpri viku síðar fékk ég höfnun þegar ég ætlaði að nota kortið í fyrsta skipti í mánuðinum. Þá fór ég í heimabankann og borgaði reikninginn. Tveimur dögum seinna fékk ég í löturpósti ítrekun um að borga. Dagsetningin var dagsetning greiðsludagsins. Það kostaði mig 525 kr. Núna fæ ég reikninginn og þá þarf ég líka að borga vexti upp á 588 kr. fyrir utan auðvitað meint útskriftargjald fyrir reikning sem bankinn neitar að senda mér bara rafrænt. 

Þessar 1.113 kr. má ég borga fyrir að skulda bankanum 94.148 kr. í slétta viku. Frá þóknun bankans verður auðvitað að draga póstburðargjald og pappírskostnað. En bankanum hefur ekki orðið skotaskuld úr að senda mér rafrænt alls kyns skilaboð út af einhverri meintri nýrri þjónustu.

Og þessi banki hefur komið skást út í skoðun minni á samkeppni bankanna.


Bankinn sem maður vill frekar leggja inn í en taka út úr

Í dag var hringt í mig og ég boðin á aðalfund Blóðgjafafélags Íslands. Mér skildist að til stæði að viðurkenna mig fyrir margháttaðar blóðgjafir (og engar úttektir, hmm). Ég varð því miður að afþakka því að ég hef þegar tekið að mér trúnaðarstarf á aðalfundi Félags leiðsögumanna!

Annars hvet ég fólk eindregið til blóðgjafa ef það getur. Það er gott að láta eitthvað af hendi (úr hendi!) rakna og svo er hvert skipti ígildi minniháttar læknisskoðunar, blóðrauði er mældur, sömuleiðis ... eitthvað annað. Ég er a.m.k. alltaf sannfærðari eftir heimsóknirnar um að ég sé heil heilsu og eigi 100 ár ólifuð (eitthvað svo krakkaleg, hehe).


Bloggfærslur 25. febrúar 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband