Miðvikudagur, 9. apríl 2008
Miskunnsami Samverjinn lifir enn góðu lífi
Gummi bróðir stendur í flutningum og ég er svo góð litlasystir (af því að hann er svo góður stóribróðir) að ég rétti honum stundum hjálparhönd. Í kvöld reyndi ég að rétta honum litlafingur við flutning á þvottavél. Sem við stóðum fyrir utan heimili hans í miðborginni, kannski dálítið rotinpúruleg og uppburðarlítil, bar að ungan karl og unga konu. Sá var ekki að tvínóna þegar hann sá aumingjaskapinn og bauð fram aðstoð við þvottavélarburð.
Ekki bara var hann mjög snöfurmannlegur við þetta í alla staði, heldur stóðum við að burði loknum á hjali lengi kvölds. Riddaramennska er sko ekki liðin undir lok.
Mig langaði að skrásetja með mynd - en feimnin aftraði mér.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)