Miðvikudagur, 28. maí 2008
Þar kom að fasteignaverðslækkuninni
Samkvæmt auglýsingu um íbúð í 101 sem ég hef fylgst með um alllanga hríð er nú verð farið að lækka í alvöru. Um jólin var hún verðlögð á tæpar 35 milljónir, nú er hún komin ofan í rúmlega 30.
Fyrir nokkrum dögum sá ég haft eftir einhverjum greiningardeildarmanni að verð færi bráðum að lækka að raunvirði. Jafnframt hvatti hann seljendur til að gera það hið fyrsta! Halda þessir peningaspekúlantar að fólk lesi bara helminginn af fréttinni eða greiningunni, að seljendur lesi bara hvatninguna um að selja og kaupendur hvatninguna um að bíða? Ef fólk tekur yfirleitt mark á spádómum um hegðun fólks höfðar það strax til verðlækkunarinnar sem spáð er síðar á árinu.
Þetta er alveg magnað.
En verðið er farið að lækka. Allir mega vitna í mig með það.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 28. maí 2008
Eldsneytisgjald ferðaskrifstofunnar
Ég er að fara í stórum hópi til Krakár í haust, eftir slétta fimm mánuði. Þegar er búið að rukka staðfestingargjald, kr. 10.000 á mann. Í dag barst þessi póstur:
Kæri hópstjóri
Mér voru að berast þær upplýsingar að vegna mikillar hækkunar á verði eldsneytis á undanförnum mánuðum þá mun leggjast til eldsneytisgjald á allar brottfarir sumarsins og haustsins á allar bókanir [XXX]. Þetta er óhjákvæmilegt þar sem fyrir liggur að eldsneytiskostnaður hefur hækkað um 60% frá áramótum. Mun því leggjast til aukagjald á hvern farþega að upphæð 1.200 kr. hvora leið í flugi.
Vil ég biðja þig að koma þeim upplýsingum áleiðis til réttra aðila.
Með kærri þökk
Og hvað gerum vér eymingjarnir? Örgum á blogginu og borgum kr. 2.400 á mann til viðbótar. Bíðum svo spennt eftir að vita hvað gerist þegar eldsneytið lækkar á næstu fimm mánuðunum, ekki satt?
Og að hækkunin skuli leggjast til jaðrar við að vera svartur húmor.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Miðvikudagur, 28. maí 2008
Brandari um innlit hjá augnlækni
Pólverji fór til augnlæknis sem spurði hann hvort hann gæti lesið næstneðstu línuna. Pólverjinn las hana án vandræða, człowiek, leit síðan á lækninn og sagði: Ég þekki hann!
Ef einhver ber mér rasisma á brýn brjálast ég fyrir mína hönd og okkar allra sem hlógum dátt á laugardaginn. Það væri samt eftir öðru.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)