Veður, veður, veður, veður verður alltaf atriði

Hvað skyldi ég oft hafa heyrt fólk bulla því út úr sér að veður skipti ekki máli, heldur hvernig fólk klæðir sig? Oft!

Ég hef aldrei verið sammála. Er það ekki og verð það ekki.

Undanfarið hef ég mikið umgengist útlendinga sem hafa velt fyrir sér hvernig þeir geti sem best nýtt sér frítíma sinn á Íslandi. Það fyrsta sem þeir hafa spurt um er veðurspáin. Sumir létu rigningarspá fæla sig frá tilteknum ferðum.

Þetta er kannski ekki til fyrirmyndar en svona er fólk samt. Og nú skal ég bara æsa mig næst þegar einhver fullyrðir þetta í mín eyru.

Veður er nokkuð sem við getum ekki haft áhrif á. Veður er náttúra og sumir heillast vissulega af tilhugsuninni um vind sem rífur í jakkana. Ég man sérstaklega eftir einum Hollendingi í Mývatnssveitinni endur fyrir löngu sem stóð uppi á hól og naut þess að geta varla staðið. Heima hjá honum var hitabylgja það sumarið.

Nei, veður er óútreiknanlegt. Margt annað á Íslandi er hins vegar útreiknanlegt. Og ég er næstum viss um að ég heyrði í útvarpinu í morgun vitnað í Börk vin minn Hrólfsson sem talaði um að salernismál yrðu hneykslið í sumar. Ég tek undir það, hafi salernunum við Dettifoss verið lokað og fólki gert að hægja sér á víðavangi er það SKANDALL. Útreiknanlegur skandall - sorglegt og alveg örugglega eitthvað sem margir nefna þegar þeir koma heim.

Ég sá líka nýlega mynd frá Geysi þar sem fólk stóð næstum ofan í skálinni við að taka myndir. Auðvitað sé ég þetta ekki á staðnum því að ég myndi banna fólki það. ÞAÐ ER HÆTTULEGT en fólk fær ekki að vita það. Hvorki eru afgerandi skilti á staðnum né fólk sem veit og segir frá.

Ferðamenn við Geysi sjálfan

Ein vinkona mín á ferðaskrifstofu sagði nýlega í mín eyru: Ef ég væri nýr ferðamálastjóri á Íslandi er þetta það fyrsta sem ég léti breyta því að nú er bara tímaspursmál hvenær einhver slasast alvarlega.

Við viljum fjölga ferðamönnum á Íslandi en bara ekkert hafa fyrir þeim.

-Garg.


Bloggfærslur 14. júlí 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband