Er borgarafundur til hægri eða vinstri?

Á fimmtudaginn var borgarafundur í Iðnó um mótmæli. Ég vakti athygli á honum og hvatti fólk til að láta sig málið varða. Katrín Linda Óskarsdóttir skrifaði athugasemd hjá mér og lét að því liggja að aðeins vinstrimenn myndu mæta.

Síðan hef ég verið svolítið hugsi yfir þessu. Ég held að þessir múrar séu byrjaðir að molna, vinstri og hægri. Ég er ekki verseruð í stefnuskrám flokkanna en er alveg viss um að ég gæti samþykkt margt í þeim öllum. Þær eru áreiðanlega falleg plögg. En það eru verkin sem sýna merkin.

Upphaflega er skilgreiningin í hægri og vinstri tilkomin vegna sætaskipanar í franska þinginu. En hvað er nú hægrimennska og hvað vinstrimennska?

Er það hægrimennska að vilja einstaklingsframtakið umfram ríkisafskipti? Hvað var þá Kárahnjúkavirkjun?

Er það vinstrimennska að sækja um sæti í öryggisráð Sameinuðu þjóðanna? Að setja á laggirnar Varnarmálastofnun?

Er það hægrimennska að láta atvinnulífið afskiptalaust? Hvað er þá ríkisstyrktur sjávarútvegur og ríkisstyrktur landbúnaður?

Er það vinstrimennska að láta garðyrkjubændur borga langtum hærra verð fyrir raforku en álver sem borga eftir heimsmarkaðsverði á áli?

Er það vinstrimennska að lána fyrir háskólagöngu?

Eru skattaálögur vinstrimennska? Hvað er þá verið að boða með aukinni skattheimtu núna?

Eru menning og listir vinstrimennska? Hvað var þá Björgólfur Guðmundsson að gera með tónlistarhúsið og styrki til listviðburða?

Er Mogginn hægrimennska og Fréttablaðið vinstrimennska?

Er það vinstrimennska að reka Seðlabankann, Fjármálaeftirlitið og Samkeppniseftirlitið?

Er það vinstrimennska að búa úti á landi og hægrimennska að taka sér bólfestu í 112 Reykjavík?

Er það vinstrimennska að eiga Fiat og hægrimennska að eiga Audi?

Er það hægrimennska að horfa á Stöð 2 og vinstrimennska að horfa á RÚV?

Er það vinstrimennska að kenna í menntaskóla og hægrimennska að skuldajafna vafninga?

Er það vinstrimennska að vera blankur og hægrimennska að vaða peninga í hné?

Er það hægrimennska að græða á daginn og grilla á kvöldin?

Er það hægrimennska að vilja kaupa Levi's handa börnunum sínum?

Er það vinstrimennska að veiða fisk á togurum en hægrimennska að róa einn til fiskjar?

Er það hægrimennska að læra frönsku og vinstrimennska að læra þýsku?

Er það hægrimennska að nota varalit og vinstrimennska að nota gloss?

-Ég skora á menn að skoða hug sinn og vita hvort þeim finnst ekki hugtökin hægri og vinstri í stjórnmálum gengin sér til húðar. Samfélagið riðar til falls og við höfum ekki efni á hnútuköstum. Við ættum að snúa bökum saman og einbeita okkur að því að endurreisa hið fallna samfélag. Orð eru til alls fyrst en mér finnst sannarlega kominn tími til að láta verkin tala, gæta þess að atvinnulífið láti ekki undan síga og að fólk flýi ekki land vegna yfirvofandi örbirgðar.

Ég ber alls ekki upp spurningarnar vegna þess að ég telji mig vita svörin. Ég hef bara orðið miklar efasemdir um þessa skiptingu í hægri, vinstri og e.t.v. miðju. Myndi Katrín Linda segja að það væri vinstrimennska að tala saman og reyna í sameiningu að komast að niðurstöðu? Af hverju þverskallast hún við að fylgjast með og e.t.v. taka þátt í umræðunni?

Ég mæti á flesta borgarafundi sem Reykjavíkurborg boðar til í hverfinu mínu. Þar hefur helst verið fjallað um skipulagsmál. Borgarstjóri hverju sinni leggur upp með skipulagstillögur, tekur þátt í umræðum, svarar spurningum og bregst í kjölfarið við sumu. Á fimmtudagskvöldið töluðu lögreglan, aðgerðasinnar, laganemi, prestur og anarkistar saman - og auðvitað salurinn - og m.a. var borin upp tillaga um að ef stefndi í möguleg átök væri ráð að skipa fulltrúa sem reyndu að miðla málum.

Er það vinstrimennska, Katrín Linda? Er það ekki bara skynsemi og viðleitni til að ná árangri?

Borgarafundur verður í Háskólabíói mánudaginn 12. janúar. Fjórir frummælendur, þar af tveir útlenskir sem hafa engra hagsmuna að gæta hér á landi, tala úr pontu og fleiri verða í pallborði, þar á meðal einhverjir frá Viðskiptaráði Íslands.

Koma svo!


Bloggfærslur 12. janúar 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband