Hvað sagði Ari Matthíasson á sunnudaginn?

Sagði hann ekki að Sigurður Einarsson í Kaupþingi hefði í nokkuð fjölmennu (20-30 manna) ... matarboði á Holtinu um aldamótin - sem Ari slysaðist í sem fulltrúi vinar síns, kvótakóngs - kynnt til Af: ruv.is/heim/vefir/ras1/sumarvegur/meira/store156/item161811/sögunnar Hreiðar Má Sigurðsson sem hafði það verkefni að kynna fyrir ríku mönnunum vogunarsjóð með góðri ávöxtun? Greifunum var síðan í lófa lagið að ráðstafa ágóðanum inn á erlenda reikninga í gegnum einkahlutafélög án þess að þurfa að greiða af arðinum. Og fjárins var aftur aflað hvaðan??? Já, alveg rétt, með því að hirða peninga út úr sjávarútveginum og öðrum atvinnugreinum á Íslandi!

Ari sagði að peningunum hefði kerfisbundið verið skotið undan og óskaði þess heitt að þessir menn fengju ekki Kaupþing í Lúxemborg til að halda áfram uppteknum hætti.

Ari sagði að skattrannsóknarstjóri vissi af þessum fundi - einhvers konar námskeiði, ekki satt? En greifarnir vissu sem var að þeim voru allir vegir færir, undir, yfir og allt í kring um lög og reglur, skeyttu hvorki um skömm né heiður, reyndu varla að leyna glæpnum, a.m.k. ekki ef það er að marka þessa sögu og allan þann hroða sem fréttastofurnar hafa þó haft uppi á um huldulán til huldumanna.

Og á ekkert að gera í þessu???

Mér finnst eðlilegt að spyrja líka hvað Ara finnist um sinn vafasama vin. Fannst honum kannski þá - og nú? - sjálfsagt að vinur hans hirti peninga út úr sjávarútveginum og margfaldaði í skattaskjóli?

Svo hrósa ég Ara fyrir að vera með í umræðunni í vettvangi dagsins, þá meina ég ekki síður eftir að hinir fengu orðið. Mér finnst verra þegar fjögur sitja í vettvangi dagsins og eiga öll bara sitt einkaspjall við Egil. Ari tók áfram þátt og var í lokin með gagnrýnar spurningar um efni sem hann var ábyggilega hlynntur heilt yfir, þ.e. að umbylta lýðveldinu.

Það er átak að vera gagnrýninn. 


Bloggfærslur 27. janúar 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband