Borgarar koma saman annað kvöld í Iðnó og fjalla um mótmæli/mótmælendur

 

OPINN BORGARAFUNDUR #7 í Iðnó fimmtudaginn 8. janúar kl. 20-22


Fundarefni:

Mótmæli (ólík viðhorf, ólíkar aðferðir, sömu markmið?), aðferðafræði mótmæla og borgaraleg óhlýðni.

Frummælendur:

Auk þeirra munu a.m.k. Katrín Oddsdóttir, laganemi og talsmaður „Neyðarstjórnar kvenna“, Sigurlaug Ragnarsdóttir fyrir hönd „Nýrra tíma“ og Þórhallur Heimisson prestur taka þátt í pallborðsumræðum og svara spurningum viðstaddra.

Birni Bjarnasyni dómsmálaráðherra hefur sérstaklega verið boðin þátttaka í pallborðsumræðunum.

Spurulir og forvitnir borgarar eru hvattir til að mæta. Gunnar fundarstjóri hefur margsagt: Við erum viðmælendur.

Við biðjum um upplýsingar, gagnsæi og heiðarleika. Er það frekt?


Bloggfærslur 7. janúar 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband