Hvað er fæðuöryggi?

Ég skal ekki vera eini einfeldningurinn sem hélt að fæðuöryggi hefði með hollustuhætti að gera. Þangað til í vikunni hélt ég að það varðaði salmónellu eða gerla - eða bráðadauða.

Nei, fæðuöryggi snýst um það hvort þjóðin hefur nóg að borða, sé sjálfbær með matvælaöflun. Það mætti orða þetta faglegar og af meira öryggi (sit hér titrandi af óvissu öryggisleysi) en heila málið er að það er leitun að landi sem er með meira fæðuöryggi en Ísland! Að vísu vantar dálítið upp á okkar eigið grænmeti en við gætum haft fisk og lambakjöt í annað hvert mál - og það þótt við værum fleiri en 317.000 stykki. Við erum einstaklega fæðuörugg.

Hvorki fæðu- né matvælaöryggi fær svörun í orðabókinni minni, Google snýr bara út úr en þegar ég prófa food security er Wikipedia vel heima. Food security refers to the availability of food and one's access to it. Það gæti ekki verið öllu skýrara - nema þá kannski á íslensku: Matur öryggi er átt við aðgengi að mat og aðgang einn dag í það - þýðing í boði Googles, já, nei, enskan er bara betri hérna.

Og af hverju þessi skyndilega meðvitund Berglindar?

Jú, ég spjallaði um þetta - og margt fleira - við minn góða vin hjá Hagstofunni sem ekki aðeins veit allt (og ætlar að láta reyna á í spurningakeppni hjá RÚV eftir hálfan mánuð) heldur vann líka hjá FAO í Róm um árið. Þegar hann talar ... hlusta ég ...


Bloggfærslur 19. desember 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband