Mitt 2007

Gildismat fólks virðist vera að breytast og ég heyri fólk á öllum aldri flissa að 2007 með tilvísan til þess hvað allt hafi verið of. Ég afvegaleiddist líka þótt mér finnist ég auðvitað svakalega skynsöm, jarðbundin - og djúpt á femínunni í mér. Ég dró loks í dag fram uppáhaldsstígvélin mín, Timberland sem ég keypti 2006, sleit þannig að rennilásinn gaf sig 2007, fór með í viðgerð, sótti í viðgerð - og setti beint í skápinn en ekki á fæturna, fór til útlanda og keypti mér lekker stígvél með hælum - sem eru svo ekki ég.

Nú fékk Timberland að spásséra milli hverfa í dag - og mitt 2007 var velkomið aftur.

Timberlandið mitt

 


Bloggfærslur 30. apríl 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband