Álitsgjafar í DV

Oft eru álitsgjafar fengnir til að gefa út palladóma - og ég hlusta alveg. Í gær voru hins vegar nafnlausir ... aaa, var það kannski viljandi? ... álitsgjafar í DV sem völdu huglægt bestu (og verstu, stóð þar, en ég fann ekki) bloggarana. Þessir ótilgreindu álitsgjafar eru greinilega smekkálitsgjafar og hrósuðu, að vonum, Láru Hönnu sem er sinn eigin fjölmiðill sem vinnur mikla heimildavinnu og fer langt fram úr vonum flestra lesanda (ég man samt að Gunnar Th. hefur andskotast út í hana). Reyndar voru á listanum nokkrir nýir, lítt virkir eða mér óþekktir bloggarar (skárra væri það) en ég saknaði sárt  hennar Öldu. Sárt. Held að menn hljóti líka að hafa gleymt Teiti en ég var mikið glöð að sjá Siggu Láru á listanum.

Þetta var álitsgjöfin mín.


Bloggfærslur 12. september 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband