Fjöldi í sveitarstjórnum

Ég fylgdist spennt með æsispennandi prófkjörum í gær en var ekki viss hvort bæjarfulltrúar í Kópavogi væru sjö eða níu. Gáði svo, enda er upplýsing besta leiðin til að eyða ... óvissu. Hey, þau eru 11! Og á síðasta ári bjuggu í Kópavogi 30.395 manns, stanslaus fjölgun frá 1997 (lengra aftur sé ég ekki á Hagstofuvefnum). Verður kannski fjölgað í 13 þegar 35.000 íbúa múrinn verður brotinn?

Ég er núna meira þeirrar skoðunar að sameining sveitarfélaga sé rétta skrefið. Hvers konar forystublæti er þetta í hverfum? Og það er ekki nokkur leið fyrir ókunnuga að sjá hvar Fossvogurinn endar og Kópavogurinn tekur við - ætti kannski að setja sérstakan Fossvogsstjóra?


Bloggfærslur 21. febrúar 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband