Sunnudagur, 30. maí 2010
Hvernig ,,ertu að" útskýra þetta?
Nafnháttarblæti flestra viðmælenda - og fréttamanna - í kosningasjónvarpinu skyggði á annað í huga mínum í gær:
Þessi er að fá fulltrúa.
Þessi er ekki að fá fulltrúa.
Fæstir segja:
Flokkurinn nær fimm manns/Flokkurinn vinnur varnarsigur/Flokkurinn fer illa út úr þessu
Flestir segja:
Flokkurinn er að ná fimm manns/Flokkurinn er að vinna varnarsigur/Flokkurinn er að fara illa út úr þessu
Nafnháttarandskotansdálæti.
Ég get fyrirgefið þeim sem stóðu vaktina við litlu fartölvurnar sínar og sögðu (voru að segja, grrr) okkur lítið sem ekkert og flest heimskulegt af því að það er deginum ljósara að kosningasjónvarpinu var haldið úti af yfirgengilegum vanefnum. Þau fengu aldrei svör, við fengum ekki að vita fyrr en eftir dúk og disk hversu margir kusu í Reykjavík, hvort útstrikuð atkvæði voru talin strax með - og það voru engin skemmtiatriði, hmm. Þóra, Bogi og Ólafur þurftu vessgú að svitna í sviðsljósinu næstum stöðugt. Jóhanna og Helgi tóku boltann smá, Ragnheiður sat um Ráðhúsið og Brynja hitti sönghóp. *geisp* enda sofnaði ég fyrr en ég ætlaði.
Var ekki allt spariféð sent til Oslóar?
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)