Mánudagur, 7. júní 2010
Víðigerði er alvöruvegasjoppa
Gummi bróðir minn stendur þar í stafni alveg vaðandi í þjónustulund. Þar er hægt að velja úr alls konar hamborgurum en ekki síður kótilettum eða steiktum fiski, súpu eða trukkum. Á morgnana er hann með íslenskan árbít, namminamm, hafragraut og lýsi(sperlur).
Vinstra megin við veginn á leiðinni norður.

Dægurmál | Breytt s.d. kl. 22:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)