Þriðjudagur, 25. desember 2012
Segir hver?
Í hádeginu var flutt frétt í ríkisútvarpinu, kennd Kára Gylfasyni:
virðast fela í sér
Áhöld eru hins vegar um hvort nýju lögin standist stjórnarskrá.
Þetta sé reyndar viðurkennt afdráttarlaust í frumvarpi um nýja stjórnarskrá.
Nefndarmenn í umhverfis- og samgöngunefnd telja sumir
Þá telur minnihluti umhverfis- og samgöngunefndar
Þá er það mat minnihlutans að málið verði ekki afgreitt
Mat áheyranda, og nú lesanda, sem hefur enga afdráttarlausa skoðun á loftslagslögum eða ESB er að þessi frétt hafi verið kranafrétt. Nefndarmenn, minni hluti eða meiri hluti, eru ekki nefndir með nöfnum. Það er vísað í nýju og gömlu stjórnarskrána. Er ákvæði um framsal og losunarheimild eins í báðum gerðum?
Sendi einn maður frá sér fréttatilkynningu eða skrifaði hann bara á Facebook-síðuna sína? Er einhver fótur fyrir þessari frétt?
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)