Mánudagur, 13. apríl 2020
Leiðsögumenn á tímum Covid
Þrátt fyrir að Björn Ingi fari í taugarnar á mörgum hef ég hvergi nema á Viljanum hans séð vott af skilningi á og samstöðu með leiðsögumönnum sem hafa áratugum saman búið við ömurleg kjör og sitja nú uppi með óbætt atvinnuleysi þegar vertíðin hefði átt að vera að hefjast. Ég var sjálf leiðsögumaður í 12 sumur eða svo og lét mér duga léleg laun af því að mér fannst svo gaman. Sumarið 2013 þóttu mér innviðir svo illa sprungnir að ég hætti að taka að mér verkefni enda alltaf aukageta hjá mér.
Ferðaþjónustan dró okkur að landi eftir hrunið en nú virðast margir útverðir hennar mega éta það sem úti frýs.
Gleðilega páska.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)