Fælir skimunargjaldið frá?

Flestir virðast hafa tilhneigingu til að horfa á málin frá eigin sjónarhorni sem er ekkert óeðlilegt. Og hér ætla ég að gera það: Ef ég væri útlenskur ferðamaður á leið til Íslands í frí þætti mér eðlilegt og æskilegt að gæta fyllsta öryggis. Hver ætti frekar að borga fyrir það en ég?

Ferðaþjónustan ber sig illa og segir að skimunargjaldið fæli frá. Þegar við förum til Bandaríkjanna borgum við eitthvert ESTA-gjald, í Evrópu er rukkað gistináttagjald og ég veit ekki til þess að það fæli allan fjöldann frá. Eiga íslenskir skattgreiðendur að borga fyrir skimunina? Á Kári að borga?

Eða eigum við ekki að skima? Ég spyr þess ekki í kaldhæðni, ég veit ekki hvort það tryggir öryggið í raun. Kannski er tímabært að við sleppum veirunni lausri og tökum skellinn.

Ég veit samt að ég er ekki með allar upplýsingarnar og að ég er ekki til þess bærust að ákveða fyrir fjöldann. Þess vegna treysti ég fólkinu sem hefur sýnt að það hugsar um almannahag, þríeykinu.


Bloggfærslur 10. júní 2020

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband