Forsetakosningar 27. júní

Ég horfði á kappræður forsetaframbjóðendanna í gær, einmitt á vefnum af því að útsendingin rofnaði í miðju kafi. Guðni Th. þarf að gjörbreytast til að ég kjósi hann ekki en ég hreinlega vorkenndi honum að þurfa að standa í þessum skrípaleik. Mig langar að vera málefnaleg en það þyrmdi svo yfir mig að horfa á Guðmund Franklín opinbera skilningsleysi sitt trekk í trekk og sýna dónaskap með frammíköllum. Að vísu finnst mér Heimir þáttastjórnandi mega stilla sig aðeins betur en kannski er það ekki á færi nema dauðra manna að kippast ekki við þegar Guðmundur Franklín byrjar að gjamma.

Guðmundur Franklín er gjammari án málefnalegrar innstæðu. Ég efast ekki um að hann sé gæddur einhverjum kostum en ekki þeim kostum sem prýða forsetann minn. Og það hvarflar ekki að honum að hann verði kjörinn enda vill hann bara kastljósið á sig og orkupakkann.


Bloggfærslur 12. júní 2020

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband