Ég nota ekki reiðhjólahjálm

Þegar ég hjólaði mjög dömulega í kjól og án yfirhafnar upp Frakkastíginn á leið heim úr vinnu í dag mætti ég stútungskalli um fertugt sem læddi út úr sér um leið og við mættumst: Þú manst hjálminn næst.

Svo fór hvort sína leið og sjálfsagt hugsaði hvort sitt. Ég hugsaði:

Ég hef 40 ára reynslu af að hjóla í umferðinni. Hjálmar voru ekki almennir þegar ég var barn og unglingur. Ég hef áreiðanlega einhvern tímann dottið um dagana en ég hef aldrei slasast. Ég hjóla einhverja kílómetra á næstum hverjum degi en almennt ekki á stofnbrautum og einfaldlega aldrei of hratt.

Í umferðarlögum segir í 1. mgr. 79. gr.:

 79. gr. Öryggis- og verndarbúnaður óvarinna vegfarenda.
 Barn yngra en 16 ára skal nota reiðhjólahjálm við hjólreiðar.

Ég er eldri en 16 ára og mér ber ekki skylda til að nota reiðhjólahjálm við hjólreiðar.

Margt annað í lífinu er áhættusamt en ég myndi aldrei segja við nokkurn mann, síst bláókunnugan: Þú manst að reykja ekki þessa sígarettu næst. Ekki klára súkkulaðið. Slepptu bjórnum. Leiktu við barnið þitt frekar en að segja því að láta þig í friði. Taktu meiri þátt í heimilisverkunum.

Af hverju finnst ókunnugu fólki í lagi að vanda um við ókunnugt fólk sem er ekki einu sinni að brjóta af sér?

 


Bloggfærslur 13. ágúst 2021

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband