Skrattakollurinn

Fyrir allmörgum árum var mér kynnt regla sem hljóðaði nokkurn veginn svona: Maður sendir ekki í tölvupósti annað en það sem má rata á forsíðu DV.

Ég hlustaði á Vikulokin á laugardaginn og Stefán Hrafn Hagalín, deildarstjóri samskiptadeildar Landspítalans, kom ljómandi vel fyrir. Sigmundur Ernir Rúnarsson, nýráðinn ritsjóri Fréttablaðsins, komst líka vel frá orðahnippingum þeirra tveggja. Það er nefnilega hægt að leggja fram andstæð rök og sjá báðar hliðar.

Ég hefði ALDREI skrifað, hvorki seint né snemma dags, 200-300 manns sem ég þekki misvel tölvupóst þar sem ég gæfi heilli starfsstétt viðurnefni, alveg sama þótt það sé krúttlegt í einhverju samhengi. Ég ætlaði ekkert að hugsa upphátt um þetta upphlaup síðustu viku en nú las ég þráð á Facebook þar sem flestir lýsa yfir ánægju sinni með skrattakolla.

Samkvæmt Snöru er skrattakollur hnjóðsyrði og orð svipaðrar merkingar sem eru gefin upp eru: þrjótur, djöflakollur, djöflamergur, skarfur, skelmir, strákskratti. Snara gefur ekki upp krútt en ég skil alveg að margir málnotendur geti hugsað sér að nota það í góðlátlegri merkingu, sbr. ömmuna sem kallaði barnabarnið litlaskít og allir, eða margir, vöndust því sem gæluyrði.

Ég er hins vegar sammála þessum ummælum á þræðinum:

PS - sé við lestur hér fyrir ofan að fólki finnst þetta "krúttlegt" orð og jafnvel prakkaralegt - held ekki að fólk taki að sér störf blaða- og fréttamanna til að vera "krúttlegt" eða ætlist eða langi til að litið sé á það sem prakkara.

Og:

Ritaður texti svo engin leið að vita hver hugur býr að baki. Í talmáli ræðst það af tóni og tjáningu eins og við vitum öll.

Ég er innilega sammála þessum tveimur.

Fyrir hálftíma bættust svo við frekari rök gegn því að kalla fólk skrattakolla.

 

 


Aðskilnaðarkvíði vegna Ólympíuleikanna

Nú eru þeir búnir! Næstu sumar-Ólympíuleikar verða í London eftir þrjú ár og ég efast stórkostlega um að ég fylgist með þeim þá, en djö sem þessir leikar hittu í mark hjá mér. Ingólfur Hannesson sagði líka í síðasta samantektarþættinum að þessir leikar hefðu verið óvenjulega góðir og hann ætti að vita það.

Þegar ég skoða nálægustu fortíð sé ég að yfirleitt hef ég verið á fjöllum á þessum tíma árs, þ.e. þegar Ólympíuleikarnir eru, og ef allt fer að óskum verð ég sjónvarpslaus sumarið 2024 ... nema náttúrlega nú er sjónvarpið í símanum sem er alltaf meðferðis.

Nú byrjar nýr kafli í lífsbókinni og ég er þrátt fyrir allar yfirlýsingarnar með hroll við tilhugsunina um að leikunum sé lokið. Toppurinn á toppnum var maraþonhlaup sem Arnar Pétursson og Snorri Björnsson lýstu af miklum myndugleik um helgina. Ég hef hlaupið heilt maraþon en ég lærði helling af því að fylgjast með í tvo tíma.


Bloggfærslur 9. ágúst 2021

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband