Ninja-barnið

Vá, hvað besta evrópska gamanmyndin 2021 skv. evrópsku kvikmyndaverðlaunahátíðinni er frábær. Ég er oft hrifin af norrænum myndum, m.a. út af tungumálinu og menningunni, en stóri bónusinn er alltaf hinn stórkostlegi leikur og allt það fólk sem ég þekki ekki úr öðrum myndum.

Aðalpersónan hér, sú sem kemst óforvarandis að því að hún er gengin sex og hálfan mánuð með óvelkomið barn, er leikin af stakri snilld og teiknipersónurnar (sem hún teiknar) blandast söguþræðinum á þann hátt sem er mér að skapi.


Bloggfærslur 13. desember 2022

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband