ALMA - raunverulegir eigendur

Mér er sagt að þessi (sjá fyrra skjáskot) séu eigendur að leigufélaginu sem hækkar umyrðalaust leigu úr 250.000 kr. í 325.000 kr. á mánuði. Látum liggja á milli hluta hver markhópurinn er og sömuleiðis kveinstafi framkvæmdastjórans yfir Covid-tengdum þrengingum. Horfum snöggvast bara á hækkunina í prósentum. 30%.

ALMA eigendur

Mér er sem ég sæi Halldór Benjamín Þorbergsson taka kröfum verkalýðshreyfingarinnar fagnandi ef þær væru upp á 30%.

Raunverulega eigendur ÖLMU má sjá í fyrirtækjaskrá, systkinin 

Guðnýju Eddu Gísladóttur

Eggert Árna Gíslason

Halldór Pál Gíslason

Mér skilst að þau séu systkini og Facebook sagði mér í gærkvöldi að þau ættu nokkur matvælafyrirtæki, þar á meðal Ali (hamborgarhryggir) og Freyju (sælgæti).

ALMA fyrirtæki

Nú væri vel þegið að fá það leiðrétt ef einhver hefur farið fram úr sér, en meðan þessi fyrirtæki liggja undir grun mun ég ekki versla við þau. Leiðinlegt að það skuli líka bitna á starfsfólkinu en óbragðið er slíkt að ég hef ekki lyst á uppáhaldsnamminu mínu í bráð.

 


Bloggfærslur 9. desember 2022

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband