Fimmtudagur, 12. júní 2025
Óli Lokbrá
Við þekkjum öll Óla Lokbrá. En ég áttaði mig á því í þessari viku að lokbrá er kvenkyns. Óli er hins vegar karlkyns. Svona getur maður orðið samdauna.
Kannski er það svipað og að fólk segir kyrrþey þótt það eigi að vera í nefnifalli og þá kyrrþeyr og svo er berjamór þannig í nefnifalli þótt flestir fari í berjamó.
En að ég skyldi aldrei leiða hugann að Óla sem ætti eiginlega ekki að vera lokbrá. En hvernig er lokbrá á dönsku? Ég finn það engan veginn.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)