Euro teuro

Það kalla Þjóðverjar evruna af því að með tilkomu hennar hækkaði allt verðlag hjá þeim. Það lét nærri að tvö mörk jafngiltu einni evru þegar hún var innleidd og í stað þess að vara sem áður kostaði tvö mörk færi að kosta eina evru sáu ýmsir kaupmenn sér leik á borði og hækkuðu vöruna um næstum 100%.

Og komust upp með það. Þó kalla nú Þjóðverjar ekki allt ömmu sína þegar kemur að fjármálum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vá, 100% hækkun á vöru. Það er sjokkerandi fyrir Íslendinga. Ég hugsa að Íslendingar hugsi sig tvisvar um áður en þeir taka upp svo skelfilega mynt.

Ó, hvílík hörmung að vera þar sem aldrei hreyfir vind. Nei þá er íslenska rokið betra. Og krónan, muniði þegar jójó-æðið skall á í boði kókakóla? Við hefðum aldrei fengið að njóta slíkra gæða með evru, eða hvað?

Kjartan Hallur (IP-tala skráð) 14.1.2007 kl. 20:49

2 Smámynd: Berglind Steinsdóttir

Ég er ekki alveg viss um að ég hafi haldið þessum síðasta þræði - það var náttúrlega rok í honum og heyrðist fyrir vikið illa. *fjúk*

Berglind Steinsdóttir, 14.1.2007 kl. 21:33

3 identicon

Tja, hvað skal segja. Evran er ekki lausn á öllum vanda, en hvað er svo sem lausn á öllum vanda. Dauðinn? Rok og jójó nefndi ég sem helstu hliðstæður við krónuna.

Evruna eða dauðann!

Kjartan Hallur (IP-tala skráð) 15.1.2007 kl. 01:06

4 Smámynd: Berglind Steinsdóttir

En sagði ekki ráðherrann að við notuðum öll plastkort hvort eð er og ávísuðum skuldunum til framtíðar? Var hún kannski að spauga?

Berglind Steinsdóttir, 15.1.2007 kl. 12:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband