Fyrsti kjánahrollurinn

Kannski þarf ég að éta ofan í mig alla bjartsýnina út af stjórnlagaþinginu. Kannski voru of margar prímadonnur valdar þarna inn. Kannski getur þetta fólk ekki unnið saman.

Mér finnst Neskirkja ekki rétti staðurinn fyrir óformlega spjallfundi tveimur mánuðum áður en stjórnlagaþingið hefst en mér finnst heldur ekki ástæða til að gera mál úr því. Ég held hvorki með Erni né Silju, er ekki á móti þeim heldur. Mér finnst hins vegar dapurlegt og til viðbótar kjánalegt ef fólk er byrjað að þræta núna.

Kannski þetta sé allt DV að kenna?

Og bara svo ég leggi púður í tunnuna: Hvað með þessi þrjú utan af landi? Komust þau á fundinn?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mér sýnist þetta vera stormur í vatnsglasi. Hvað veit maður um fyrirvarann á þessum óformlega fundi? Það er ósköp eðlilegt að ekki allir geti fært allt á dagatalinu til fyrir óformlegan fund. Það getur verið erfitt að finna fundartíma með 6 uppteknum einstaklingum hvað þá 25. 

Auður Sig (IP-tala skráð) 13.12.2010 kl. 21:33

2 Smámynd: Berglind Steinsdóttir

Já, þetta er trúlega ekki fréttamatur í alvörunni, tek undir með þér. Kannski gönuhlaup hjá prestinum samt að boða hann.

Berglind Steinsdóttir, 13.12.2010 kl. 22:15

3 identicon

Heyrðu, seint í rassinn gripið en... "klúbbbúlla".

Gummi (IP-tala skráð) 17.12.2010 kl. 18:52

4 Smámynd: Berglind Steinsdóttir

Vorum við búin að ræða rasssæri?

Berglind Steinsdóttir, 17.12.2010 kl. 22:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband