Fasteignagjöld 2011

Fasteignamat flestra eigna sem hækkaði skart á þenslutímanum lækkar núna. Skv. síðu Reykjavíkurborgar lækkar álagningin núna líka - sem kemur frekar flatt upp á mig. Ég hélt að sveitarfélög myndu nota tækifærið til að hækka hlutfallið og fá svipaða krónutölu. Ef eitthvað er að marka þetta lækka fasteignagjöld á 30 milljóna kr. eign úr 120.000 kr. í 67.500. Er það sennilegt?

Eða er meiningin að fá mismuninn inn á sorphirðugjaldinu? Er það e.t.v. lóðarleigan? Þarf maður kannski að hringja í Ráðhúsið eða bíða til þeirra mánaðamóta þegar fyrsti greiðsluseðillinn dettur inn til að fá skýrt svar?

Alveg er ég viss um að landfræðingur sem ég þekki veit svarið við þessu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Held að þú hafir gleymt að taka helminginn af dæminu með í reikninginn.

Miðað við tilvísunina sem þú sendir þá hækkar álagningin hjá okkur hér í Rvk. Fasteignaskatturinn 2011 verður 0,225% af fasteignam. húss og lóðar en var 0,214%. Fasteignamatið fyrir mína íbúð hefur lækkað um ca 3 milljónir (í 24,350 þús) og því lækkar fasteignaskatturinn um ca 4 þúsund og verður 55 þús. Lóðarleigan hækkar hins vegar um 3500 krónur í 7500, vegna hækkunar á álagningarprósentu.

Samtals er þetta um 62.5000 en þá er ekki allt upp talið. Hluti af fasteignagjöldunum er fráveitugjald, vatnsgjald og sorphirðugjald sem var í fyrra tæp 70 þús.

Ég reikna því með rúmlega 130 þús króna reikning fyrir fasteignagjöldin, eins og í fyrra.

Með hilsu frá landfræðitölfræðingnum sem tekur áskorun.

ps. get sent þér afrit af greiðsluseðlinum síðan í fyrra :o)

landfræðingur (IP-tala skráð) 13.1.2011 kl. 10:13

2 Smámynd: Berglind Steinsdóttir

Já, ég hafði allt mitt vit frá fasteignasala sem setti líka spurningarmerki við túlkun sína. Hún sagði samt að álagningin hefði verið 0,4% af fasteignamati en færi niður í 0,225% og skildi það ekki.

Berglind Steinsdóttir, 13.1.2011 kl. 10:44

3 identicon

Geld varhug við því að þú skiptir við þennan fasteignasala sem er ekki betur með á nótunum en þetta.

Landfræðingur (IP-tala skráð) 13.1.2011 kl. 10:59

4 Smámynd: Berglind Steinsdóttir

Hún sló samt varnagla á varnagla ofan og nýtur þess - einkum ef íbúðin er sú rétta, trallala, og þar sem ég er heldur ekki afglapi í fjármálum og efast sjálf læt ég ekki plata mig út í neina vitleysu (ég á sennilega eftir að sjá eftir að hafa skrifað þetta).

Berglind Steinsdóttir, 13.1.2011 kl. 17:55

5 identicon

Nú skil ég. Þetta var rétt hjá Fasteignasalanum. Fasteignagjöldin lækka umtalsvert þetta árið EN það er vegna þess að borgin mun ekki rukka vatnsgjaldið og fráveitugjaldið fyrir Orkuveituna eins og hún hefur gert hingað til. Það mun Orkuveitan hins vegar gera sjálf þannig að útkoman verður svipuð. Allt hækkar svona soldið.

Hrafnhildur (IP-tala skráð) 19.1.2011 kl. 14:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband