Föstudagur, 9. mars 2012
Í Þjóðmenningarhúsinu
Alveg gæti ég unað mér dagana langa í landsdómi við að hlusta, horfa á fólkið og fylgjast með hvernig efninu er haldið til haga en eftir tvö stutt innlit er mér efst í huga undrun yfir því að fréttamennirnir eru látnir sitja eins og hænur á priki, í besta falli með aukapúða í sætinu og fartölvupullu undir fartölvunni. Og þeir tvíta stöðugt og gera það vel, a.m.k. þar sem ég fylgist með.
Ég gef mér ekki tíma í neinar slímusetur. Þar fyrir utan eru gerð hlé af og til, t.d. ef næsta vitni er ekki alveg mætt, og þá myndi maður hvort eð er ekki nenna að sitja inni og kannski missa sætið sitt næst þegar vitnaleiðsla byrjar.
En sagan er í gangi þarna og það er forvitnilegt að þefa aðeins af henni.
Athugasemdir
Alveg hefði ég verið til í að vera fyrir utan Þjóðmenningarhúsið að kasta eggjum og berja tunnur þegar bankaræningjarnir mættu á svæðið... Þá hefði ég verið sáttari við söguna.
Á (IP-tala skráð) 14.3.2012 kl. 22:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.