Ef leiðsögumaður ...

Leiðsögumenn hafa árum saman barist fyrir því að fá löggilt starfsheiti. Helsti stopparinn er hjá Samtökum ferðaþjónustunnar. Það geta vel verið rök gegn löggildingunni og sumir góðir vinir mínir (sem ekki eru í ferðaþjónustunni) eru ekkert á því að við leiðsögumenn eigum að fá löggildingu.

Það eru til lélegir fagmenntaðir leiðsögumenn, já já, og það eru til óskólagengnir leiðsögumenn á heimsmælikvarða en við höldum samt að löggilding myndi meðal annars koma í veg fyrir þá sjóræningjastarfsemi að útlenskir hópstjórar sem hafa einu sinni komið til landsins kæmu síðan strax næsta ár sem „leiðsögumenn“ án þess að vita nokkuð umfram það sem þeir heyrðu í sinni fyrstu ferð.

Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri SAF, var í heimsókn á Bylgjunni í vikunni að tala um Kerið og aðkomu að því - eða ekki aðkomu því að Kerið er í einkaeigu þótt Vegagerðin hafi gert bílastæðið og ferðamálaráð stíginn. Og hún hafði orð á leiðsögumönnum!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Sammála þér um nauðsyn löggildingar starfsheitis á faglegum forsendum.

Annað:

Hver var fyrsti Íslendingurinn sem hafði tekjur af ferðaleiðsögn?

Mjög líklegt er að Eiríkur Magnússon síðar bókavörður í Cambridge hafi verið sá fyrsti rétt upp úr miðri 19. öld. Hann var jafnvel fyrr á ferðinni en Geir Zoëga sem seinna varð þekktastur fyrir útgerð og verslun.

Nú er eg að undirbúa ráðstefnur og kynningu á Eirík í Cambridge í samstarfi við ýms fagfélög og mér þætti eðlilegt að Félag leiðsögumanna tæki þátt að einhverju leyti.

Það er öllum fagfélögum mikilvægt að kynna sig með starfi sínu.

Bestu kveðjur

GJ

Guðjón Sigþór Jensson, 1.5.2012 kl. 10:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband