Fimmtudagur, 31. maí 2012
Vaðlaheiðargöng
Ég er ekki mesti landsbyggðarráparinn en ég varð svolítið logandi hrædd - sem sagt hefði getað orðið það en er svo mikill nagli - þegar ég sat sem farþegi í rútu í fyrrasumar á leið til Neskaupstaðar í þreifandi þoku. Ég kannast ekki við þá tilfinningu á Norðurlandi þannig að ef ég réði kæmu Norðfjarðargöng á undan Vaðlaheiðargöngum.
Og hvernig í veröldinni stendur á því að fjórðungssjúkrahúsið er handan við þetta Oddsskarð?
Athugasemdir
Því það var byggt í stærsta og öflugasta byggðarlaginu á Austurlandi á þeim tíma þegar samgöngur voru tryggastar á sjó, flóknara er það nú ekki.
Svo hafa samgöngur á landi víðast hvar færst til nútíma horfs en ekki við Neskaupstað og heldur ekki við Seyðisfjörð.
Að Akureyri liggja vegir úr þremur áttum, tveir nútíma vegir og einn sem má vel flokka með þeim vegum sem núteingja Neskaupstað og Seiðisfjörð við þjóðvega kerfið.
Hrólfur Þ Hraundal, 1.6.2012 kl. 07:30
Ég keyri ofurvarlega til Nekskaupsstaðar og set Norðfjarðargöng klárlega efst á óskalistann yfir rándýrar vegaframkvæmdir. Ekki spurning.
Hrafnhildur (IP-tala skráð) 4.6.2012 kl. 10:31
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.